Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Page 64
64 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
svo fjöldi manna flúði harðindin og flutti til Ameríku.
Þá flutti Bergþór til Ameríku, árið 1889, og kom til Win-
nipeg. Þar staðnæmdist hann 2 ár, en flutti svo út í þessa
bygð, sumarið 1891. Þar nam hann land á 14 Sec. 4, T.20,
R. 5. Reisti þar bú og bjó þar 24 ár. Þá hætti hann að
búa og fór til dóttur sinnar að Last Mountain í Saskatch-
ewan, og dvaldi þar í hálft annað ár. Þá fluttu þau hjónin
til Lundar bæjar alfarin, og hafa dvalið þar síðan. Börn
þeirra eru: 1. Björg Stefanía, fædd 1887, gift Rúnólfi
Isleifssyni bónda við Last Mountain, Sask. Þau eiga tvo
sonu, Jón og Harald. 2. Jón Pétur, fæddur 23. mars 1885.
Hann er kvæntur Petrinu Magnúsdóttir Freeman. Þau
eiga 6 börn: Guðrún, ógift heima; Wilhelmína Bergþóra,
einnig heima; Ólafur, fæddur 1917, stundar fiskiveiðar;
Albert, fæddur 1924; Magnús Helgi, fæddur 1928; Jón
Pétur, fæddur 1935.
Bergþór og kona hans, hafa nú í mörg ár dvalið hjá
Jóni syni sínum við góða heilsu, þó gömul séu orðin.
Wilhelmina er þó búin að liggja í rúminu nokkur ár,
vegna þess hún varð fyrir slysi, en er þó vel hress. En
Bergþór gengur djarflega um strætin enn, öldurmann-
legur og ern. Hann er sannur Þingeyingur.
SIGFÚS SIGFÚSSON BORGFJÖRÐ Pálssonar bónda
á Gilsárvallar hjáleigu í Borgarfirði eystra, er fæddur
1886, og ólst upp með foreldrum sínum til fullorðinsára.
Móðir hans hét Kristín Jónsdóttir, breiðdælsk að ætt.
Sigfús var vinnumaður upp á Héraði nokkur ár. En árið
1894 kvæntist hann Sigríði Eiríksdóttur Rafnssonar á
Egilsstöðum á Völlum. Árið 1902 fluttu þau til Ameríku,
voru eitt ár í Winnipeg, en 1903 fluttu þau hjón til Alpta-
vatnsbygðar og námu land á 14 Sec. 2, T. R., og bjuggu
þar í 5 ár. Þá seldi Sigfús landið og flutti vestur yfir
Manitobavatn, og bjó þar í 12 ár. Því næst flutti hann
aftur til Lundar og bjó þar á ýmsum löndum nokkur ár.