Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Qupperneq 132
132 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
16. júní 1919. Foreldrar: Árni Guðmundsson Goodman, bóndi
við Camp Morton (látinn fyrir nokkrum árum) og Guðrún
kona hans.
20. Málfríður Eastman, ekkja Elíasar Eastman (d. 1923), að
heimili sínu í Grafton N. Dak. Fædd í Búðardal i Dalasýslu
26. mai 1870. Fluttist til Ameríku árið 1887 og hafði verið
búsett í Grafton siðan 1890. t
20. Sveinn Sveinbjörnsson, að heimili Stefáns og Þórunnar Einars-
son í Upham, N. Dak. Fæddur að Ósi í Eyjafjarðarsýslu 11.
apríl 1861. Foreldrar: Sveinbjörn Sigurðsson og Sigríður
Sveinsdóttir. Fluttist vestur um haf 1883.
26. Jóhann Skúli Ingimundarson, að heimili sínu í Selkirk, Man., (
75 ára að aldri.
26. Þorsteinn Jónsson Gauti, að heimili sínu i Wynyard, Sask,
Fæddur að Lundabrekku i Búðardal 17. apríl 1866. Foreld-
rar: Jón bóndi Jónsson, prests í Reykjahlíð og seinni kona
hans Jórunn Pálsdóttir. Kom vestur um haf 1887. Hafði dval-
ið um skeið í ýmsum bygðum Islendinga sunnan og norðan
landamæra, en átt heima i Wynyard síðan 1914.
27. Þorbjörg Dalmann, í Cavalier, N. Dak. Fædd á Brattagerði
í Norður-Múlasýslu 24. des. 1869. Foreldrar: Páll Vigfússon
Dalmann og Elisabet Guðmundsdóttir. Fluttist til Vestur-
heims með foreldrum sínum 1878.
í sept.— Wilhelm Edwin Anderson flugmaður, dó af sárum í Eng-
landi. Fæddur í Winnipeg 25. febr. 1914. Foreldrar: Ólafur
Theobald (látinn) og Guðríður Árnadóttir Anderson.
OKTÓBER 1943
1. Sigurlaug Johnson, ekkja Egils Johnson (d. 1931), að heimili
dóttur sinnar og tengdasonar, Mabel og Ólafur Sigurðsson,
að Gimli. Fædd 21. júní 1869, og er hún talin ættið úr Húna-
vatnssýslu og uppalin þar; en vestur um haf fluttist hún af
Blönduósi um aldamótin. Sonur þeirra hjóna er Edwin John-
son, hinn víðkunni blaðamaður og fréttaritari. (Smbr. Alm-
anak 1941.)
1. Árni Thorfinsson, að heimili sínu í grend við Mountain, N.
Dak. Fæddur að Brekkukoti í Hjaltadal í Skagafjarðarsýslu
7. nóv. 1887. Foreldrar: Þorfinnur Jóhannesson og Elísabet
Pétursdóttir. Fluttist til Ameríku með foreldrum sínum 1882
og hafði ávalt síðan átt heima í N. Dak. lengst af í grend
við Mountain.
1. Jón K. Johnson, bóndi við Mountain, N. Dak., á sjúkrahúsi
í Edinburg, N. Dak. Fæddur á Breiðumýri i Þingeyjarsýslu ,
4. okt. 1868. Foreldrar: Kristján Jónsson og Sessilia Sigurð-
ardóttir. Kom með foreldrum sínum vestur um haf 1883.
6. Olga Davidson Vopni, á Grace sjúkrahúsinu í Winnipeg, 59
ára að aldri, dóttir Sigurðar Davíðssonar, Húnversk að ætt,