Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Side 134
134
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Thorsteinsson. (Sjá dánarfregn móður hennar 7. ágúst hér
að ofan).
14. John Anthony (Antoníusar.son), á West Dog Ilead Point á
Winnipegvatni, 59 ára að aldri. Fæddur á Seyðisfirði, en flutti
vestur um haf á unga aldri með foreldrum sínum, Anton-
íusi Jónsson og Guðfinnu Finnsdóttur, og settist að á Geysir
í Nýja-lslandi.
17. Guðný Runólfsdóttir Westdal, ekkja Ásgrims Guðmundsson
Westdal (d. 1931), í Minneota, Minn., 89 ára að aldri.
17. Stefanía Eiríksdóttir Hjálmson, á sjúkrahúsi í Bellingham,
Wash. Fædd í Skagafjarðarsýslu 21. okt. 1864. Foreldrar:
Eiríkur Hjálmarsson og Lilja Stefánsdóttir. Fluttist til Vest-
urheims 1883.
21. Sigurrós Nordal, að heimili sínu í Lulu Island; dvaldi um
langt skeið í Winnipeg.
23. Jófriður Jósefsdóttir Hjálmarsson, ekkja Hjálmars Hjálmars-
son landnema í Mikley, Man. (d. 1930), á elliheimilinu “Bet
el” að Gimli. Fædd 12. maí 1850 að Bergholti í Snæfellsnes-
sýslu. Foreldrar: Jósep Jónsson hreppstjóri og meðhjálpari
á Ilofsstöðum og Elín Kristín Gísladóttir. Fluttist vestur um
haf með manni sínum 1876.
25. Jónas Jónasson, landnámsmaður, að heimili sínu Lóni (Bjark-
arlóni) við íslendingafljót í Nýja-lslandi. Albróðir landnáms-
höfðingjans Sigtryggs Jónasson og kom vestur um haf til Kin-
mount, Ont., 1874 og til Nýja-lslands í fyrsta hópnum þang-
að; átti þar heima jafnan síðan. (Um ætt þeirra, sjá dánar-
fregn Sigtryggs í Almanaki síðasta árs.)
28. Þórður Anderson, að heimili sinu í Bellingham, Wash. Fædd-
ur 7. sept. 1875 að Úthlíð í Biskupstungum í Árnessýslu.
Foreldrar: Einar Þórðarson frá Húsatóftum og Guðrún Guð-
mundsdóttir frá Efstadal í Laugardal. Kom til Vesturheims
aldamótaárið, fluttist vestur að hafi tveim árum síðar og
hafði lengstum verið búsettur i Bellingham. (Sjá um hann i
þáttum Isl. í Bellingham, Almanak 1941.)
29. Monika Thompson, í Winnipeg, 86 ára að aldri. Ekkja Gísla
Thompson, er um eitt skeið bjó á Krossi í grend við Gimli.
29. Steinunn Jónsdóttir Stefánsson, ljósmóðir, ekkja Þórarins
Stefánsson fyrrum bónda í Framnesbygð, að heimili dóttur
sinnar í Winnipeg. Fædd 18. nóv. 1857 að Ilólmi í Landbroti
í Vestur-Skaftafellssýslu. Foreldrar: Jón Jónsson og Guðlaug
Jónsdóttir. Fluttist vestur um haf með manni sínum 1893.
30. Ingunn Johnson, ekkja Páls Johnson rafvirkja, að heimili sínu
í Winnipeg. Fædd að Gimli og var rúmlega 64 ára að aldri.
DESEMBER 1943
7. Ólafur K. Ólafsson, um langt skeið bóndi að Garðar, N. Dak.,
að heimili dóttur sinnar, Mrs. Lloyd Sussex í Havre, Mont.