Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Side 124
124
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
og Hnappadalssýslu. Foreldrar Einar Þorvaldsson Dalman
og Guðríður Jónsdóttir. Kom til Canada með foreldrum sín-
um 13 ára gamall. Átti um 20 ára skeið sæti í bæjarstjórn
Selkirkbæjar og gengdi öðrum opinberum störfum.
13. Gunnar Helgason, að heimili sínu á Gunnarsstöðum í Rreiðu-
vík í Nýja-lslandi. Fæddur á Steinkirkju í Fnjóskadal í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu 11. nóv. 1858. Foreldrar: Helgi Guðlaugs-
son og Guðrún Gunnarsdóttir. Fluttist vestur um haf til Can-
ada 1887 og tók næsta ár heimilisréttarland í Nýja-íslandi
og bjó þar til dauðadags.
15. Jóhanna Jónsdóttir Halldórsson, ekkja Jónasar Halldórsson,
á heimili dóttur sinnar, Nýbjargar Snædal, að Oak Point,
Man. Fædd 26. júní 1846 á Laugalandi í Eyjafjarðarsýslu.
Foreldrar: Jón Halldórsson og Sigríður kona hans. Fluttist
vestur um haf með manni sínum 1895.
15. Björg J. Thorkelson kenslukona, að heimili systur sinnar,
Guðleifar Johnson, að Otto, Man. Fædd 3. nóv. 1868. For-
eldrar: Jón Jónatansson Þorkelssonar frá Keldunesi í Keldu-
hverfi og Guðrún Sveinungadóttir (um ætt hennar, sjá grein
um Kristrúnu systir hennar í Almanaki 1943). Kom vestur
um haf með foreldrum sínum 1883. Yfir 30 ár kenslukonar
í Manitoba og Sask.
17. Katrín Einarsdóttir Kristjánsson, landnámsbónda við Nar-
rows pósthús, Man., á sjúkrahúsi í Eriksdale, Man., aldur-
hnigin. Hafði lengi á hendi póstafgreiðslu við Narrows.
18. Jóhann Jóhannsson, er búsettur hafði verið í full 35 ár í
Selkirk, Man., að hemili sínu. Fæddur í Núpasveit í Norður-
Þingeyjarsýslu 16. ágúst 1866, en ólst upp á Daðastöðum í
sömu sveit. Foreldrar: Jóhann Árnason og Hólmfriður Jóns-
dóttir. Kom til þessa lands 1889.
21. Guðbjörg Þorsteinsdóttir Nordman, ekkja Guðmundar Norð-
mann, að heimili sínu í Argyle-bygð. Fædd að Rangá í Hró-
arstungu í Norður-Múlasýslu 10. júlí 1853. Foreldrar: Þor-
steinn Sigurðsson og Guðrún Árnadóttir. Kom vestur um haf
1875.
22. Sigríður Johnson, kona Jóns J. Johnson í grend við Akra,
N. Dak., á sjúkrahúsinu í Grafton, N. Dak. Fædd í Isafoldar-
bygð i Nýja-lslandi 20. okt. 1891. Foreldrar: Jóhann Jó-
hannsson, skagfirskur að ætt, og Friðrika Jónsdóttir, ættuð
úr Eyjafirði. Fluttust til Nýja-lslands fyrir nálega 60 árum
(bæði látin).
24. Bændaöldungurinn Bergþór Jónsson, að heimili sínu að Lund-
ar, Man. Fæddur að Hriflu í Suður-Þingeyjarsýslu 2. nóv.
1859. Kom til Vesturheims 1889.
APRÍL 1943
3. Páll Hafstein Johnson, á Grace sjúkrahúsinu í Winnipeg.