Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 39
Aðalfundur Prestafélags íslands 1950,
Aðalfundur Prestafélags íslands var haldinn í
Tilhögun. hátíðasal Háskólans þriðjudaginn 20. júní, en
hófst með morgunbænum í kapellunni. Þær
flutti séra Gísli Brynjólfsson frá Kirkjubæjarklausri. Því næst
setti formaður félagsins, Ásmundur Guðmundsson prófessor,
fundinn og stýrði honum. Fundarritarar voru þeir séra Árelíus
Níelsson og Bjöm Magnússon prófessor.
I fundarlok um kvöldið gengu menn aftur í kapellu. Þar hélt
séra Sigurjón Guðjónsson prófastur í Saurbæ ræðu og bað
bænar. Síðast var sungið versið „Son Guðs ertu með sanni".
Fundinn sátu fimmtíu andlegrar stéttar menn.
Að honum loknum, fyrir og um náttmál, söfnuðust prestar og
konur þeirra saman í salnum á Gamla Garði og áttu þar mjög
ánægjulega stund við samræður og söng, upplestur og kaffi-
drykkju.
Formaður bauð fundarmenn velkomna. Hann
Ávarp minntist nokkrum orðum 40 ára prestsstarfs
formanns. dr. Bjarna Jónssonar vígslubiskups í Dóm-
kirkjusöfnuðinum í Reykjavík. Því næst gat
hann látinna presta á liðnu starfsári, en þeir önduðust sex á
tæpum ársfjórðungi, allir merkisprestar. Lýsti hann hverjum
þeirra um sig nokkrum orðum og rakti störf þeirra í þágu
Prestafélags íslands. Þessir prestar voru, sem hér segir:
Séra Páll Sigurðsson, sóknarprestur í Bolungarvík.
Séra Friðrik Hallgrímsson, dómprófastur í Reykjavík.
Séra Þorsteinn Briem, prestur og prófastur á Akranesi.
Séra Magnús Bjamarson, prestur og prófastur að Prests-
bakka.