Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 43
AÐALFUNDUR PRESTAFÉLAGSINS 1950
195
Umræður um málið urðu miklar og fjörugar, og tóku þessir
til máls: Dr. Bjami Jónsson, séra Pétur Magnússon, séra
Árelíus Níelsson, séra Helgi Sveinsson, séra Jakob Jónsson,
séra Magnús Guðmundsson og Ásmundur Guðmundsson pró-
fessor. í lok máls síns bar hann fram svo hljóðandi tillögu frá
stjóm Prestafélagsins:
Prestafélag Islands beiti sér fyrir því, að undirbúningur verði
hafinn að stofnun kristilegs æskulýðsskóla fyrir þjóðkirkju ís-
lands.
Önnur tillaga var einnig borin fram, sem hér segir:
Aðalfundur Prestafélags íslands 1950 ályktar að kjósa
þriggja manna nefnd til þess að leggja tillögur fyrir næsta
aðalfund í því efni, sem var aðalmál þessa fundar: Kirkjan og
þjóðmálin.
Báðar þessar tillögur vom samþykktar. Og í nefndina voru
kosnir: Séra Einar Guðnason, séra Jón Guðjónsson og Sigurjón
Guðjónsson prófastur.
Séra Benjamín Kristjánsson flutti ýtarlegt er-
Fyrirlestur. indi um mannvininn og snillinginn Albert
Schweitzer, sem átti 75 ára afmæli síðastliðinn
vetur. Fyrirlesturinn er prentaður á öðrum stað hér í ritinu.
Úr stjóm áttu að ganga að þessu sinni: Dr. Bjami Jónsson,
Bjöm Magnússon prófessor og séra Hálfdan Helgason. Dr.
Bjami baðst undan endurkosningu, en hinir
Stjórnarkosning báðir vom endurkosnir. Ennfremur var kjör-
og kosning inn í Prestafélagsstjómina séra Þorsteinn
endurskoðenda. Björnsson fríkirkjuprestur. Fyrir em í stjórn-
inni Ásmundur Guðmundsson prófessor og
séra Sveinbjöm Högnason prófastur. Varamenn í Prestafélags-
stjóm vora þeir kjörnir séra Garðar Svavarsson og Sigurbjörn
Einarsson prófessor. Endurskoðendur vom kosnir séra Ásgeir
Ásgeirsson og séra Sigurjón Árnason.
Stjórn Félagsins skipa þá nú:
Ásmundur Guðmundsson prófessor, formaður.
Bjöm Magnússon prófessor, ritari.
Séra Hálfdan Helgason prófastur.
Séra Sveinbjörn Högnason prófastur.
Séra Þorsteinn Björnsson fríkirkjuprestur.