Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 17
ALBERT SCHWEITZER 169
(þ. e.: hinni komandi Messíasaröld) verði hinn minnsti
honum meiri.
Þessar athugasemdir fengu honum margt að hugsa, og
þegar heim kom hafði hann öðlazt algerlega nýtt sjónar-
mið á þessum hlutum.
Sneri hann sér nú af alefli að þessum rannsóknum, en
jafnframt las hann heimspekina af kappi, einkum Plato
og Aristoteles, en samdi að lokum doktorsritgerð um trúar-
heimspeki Kants. Kom það rit út 1899 og er allmikil bók
með fjölda stórmerkra og frumlegra athugana, og telja
sumir að Schweitzer hafi orðið fyrir nokkrum áhrifum frá
Kant.
Nú kom hvert ritið á fætur öðru frá hans hendi á næstu
árum: Das Abendmahlsproblem og Das Messianitáts und
Leidensgeheimnis 1901 og Die Geschichte der Leben-Jesu-
Forschung 1906, þar sem hann rekur sögu þessara rann-
sókna frá Reimarus til sinna tíma, gagnrýnir þær og gerir
nánari grein fyrir skoðunum sínum. Bók þessi var brátt
þýdd á enska tungu og hlaut þar nafnið: The Quest of the
Historical Jesus.
í framhaldi af þessum guðfræðirannsóknum, ritaði hann
á fyrstu árum sínum í læknaskólanum gagnrýni á Páls-
rannsóknunum frá siðaskiptum, en sú bók kom ekki út
fyrr en 1911. Sama er að segja um áframhald af þessu
riti: Die Mystik des Apostels Paulus. Það var að mestu
leyti samið áður en Schweitzer fór til Afríku. En því ollu
ýmsar ástæður að bókin kom ekki út fyrr en 1930.
Með þessum höfuðritum hefir Schweitzer gert grein
fyrir skoðunum sínum á kenningu og persónu Jesú og sögu
frumkristninnar, en mikla löngun hefir hann haft til að
bæta við þriðja þættinum, er fjalla á um áhrif hellenism-
ans á kristna hugsun eins og hún birtist í Jóhannesar-
guðspjalli og hjá kirkjufeðrunum. En hann hefir brostið
tíma til að taka þetta efni til meðferðar enn, enda hefir
hann löngum haft önnur járn í eldinum.