Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 63
PRESTASTEFNAN 1950
215
Meðal merkra kirkjumanna, er heimsóttu ísland á árinu, má
nefna prófessor C. J. Bleeker frá Háskólanum í Amsterdam, er
meðal annars flutti hér Haralds Níelssonar fyrirlestur í Há-
skólanum, og Dr. Alfred Jörgensen, einn af ágætustu kirkju-
mönnum Dana, er hér dvaldi um tíma og ferðaðist nokkuð um
landið.
KirkjublaBið og Kirkjuritið hafa komið út með svipuðum
hætti og undanfarin ár. Ennfremur tímaritið Víðförli, er séra
Sigurbjörn Einarsson prófessor er ritstjóri að. Svo og blaðið
Bjarmi. Haldið hefir verið áfram útgáfu safnaðarblaðsins Geisl-
ans á Bíldudal, Kirkjuklukkunnar á Siglufirði og Æskulýðs-
blaðsins á Akureyri. Ennfremur hefir séra Friðrik A. Friðriks-
son prófastur á Húsavík gefið út safnaðarblað á þessu ári.
Vil ég þakka þeim prestum, sem að þessum blöðum standa,
áhuga þeirra, um leið og ég vænti þess, að fleiri prestar sjái
sér fært að hefja slíka starfsemi í söfnuðum sínum svo fljótt,
sem kringumstæður leyfa.
Af bókum kirkjulegs og kristilegs efnis hefir fátt verið prent-
að á þessu ári. Vil ég þar einkum geta nýrrar útgáfu á Markús-
arguðspjalli með skýringum eftir prófessor Ásmund Guðmunds-
son. Ennfremur hefir komið út ný útgáfa af Hátíðasöngvum
séra Bjarna Þorsteinssonar, en fyrri útgáfa var uppseld fyrir
nokkru. Enn má geta um útkomu 1. bindis af íslenzkum ævi-
skrám eftir Dr. Pál E. Ólason, sem Bókmenntafélagið gefur út.
Er þar að finna mikinn fróðleik um æviatriði íslenzkra presta
að fornu og nýju. Minningarrit vandað og snoturt hefir verið
gefið út um séra Pál Sigurðsson í Bolungarvík.
Loks vil ég geta um það, að á árinu kom út skáldsagan
Útnesjamenn eftir séra Jón Thorarensen, er hlaut mjög góða
dóma.
Að tilhlutan kirkjuráðs voru á síðastliðnu sumri famar tvær
ferðir til fyrirlestrahalds og prédikana. Séra Magnús Guð-
mundsson og dr. Árni Árnason læknir á Akranesi ferðuðust
um Norður-Múlaprófastsdæmi, en þeir séra Pétur Sigurgeirsson
á Akureyri og Jón Þorsteinsson kennari um Suður-Múlapró-
fastsdæmi. Fluttu þessir menn erindi um kristindóms- og kirkju-
mál í öllum kirkjum prófastsdæmanna, en prestamir sungu
messur á öllum kirkjunum. Samkomur þessar voru yfirleitt
sæmilega sóttar og sums staðar ágætlega.