Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 96
Hátíð að Hólum,
Blöð og útvarp hafa skýrt ýtarlega frá mikilli hátíð að
Hólum 13. ágúst s.l. til minningar um Jón biskup Arason
og sonu hans. Er meðal annars glögg og góð frásögn um
hana í 13. tbl. Kirhjublaðs 21. ágúst, og lætur Kirkjuritið
sér nægja að skírskota til hennar. En erindi Magnúsar
prófessors Jónssonar um Jón Arason mun það birta í
jólaheftinu. Hefir það ekki verið prentað annars staðar,
en var hið merkasta og ágætasta.
Þessi hátíð var Hólanefnd, með prófast Skagfirðinga í
broddi fylkingar, og öllum, sem að henni unnu, til hins
mesta sóma. Var undirbúningur prýðilegur og vel fyrir
öllu hugsað. Mun aðalþunginn þar hafa hvílt á skólastjór-
anum á Hólum, Kristjáni Karlssyni, og konu hans, frú
Sigrúnu Ingólfsdóttur, og einkenndi viðtökur þeirra ástúð
og höfðingsskapur. Hátíðin markar spor í sögu Hóla, svo að
ekki gleymist. Turninn, minnismerki Jóns Arasonar, gnæfir
hár og fagur yfir Hólastað. Loforð er fengið fyrir því, að
Hólar verði á næstunni prestssetur og þar rísi vandað
prestshús. Og það, sem mest er um vert: Trúarhrifning
fór um hugina á þessari hátíð, er fólkið þusti heim að
Hólum, og mun hún verða til mikillar blessunar.