Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 57
PRESTASTEFNAN 1950
209
vors og bróður, séra Halldórs E. Johnson, er fórst í hinu hörmu-
lega sjóslysi við Vestmannaeyjar 7. janúar s.l.
Séra Halldór var fæddur að Sólheimum í Skagafirði 12. sept.
1887. Hann fór ungur vestur um haf, stundaði þar nám og tók
prestsvígslu 1918. Var síðan prestur meðal Vestur-íslendinga
um mörg ár, en hvarf heim til íslands á síðastliðnu sumri
og gerðist kennari í Vestmannaeyjum.
Séra Halldór var greindur maður, fróður og víðsýnn, hag-
mæltur vel og hinn bezti drengur.
Minningu hans vottum vér virðingu og þökk með því að rísa
úr sætum.
Á árinu hafa tveir prestar látið af embætti. Eru það séra
Þorsteinn Björnsson á Þingeyri, er gerðist prestur fríkirkju-
safnaðarins í Reykjavík, og séra Halldór Jónsson á Reynivöll-
um. Séra Halldór hefir, sem kunnugt er, þjónað Reynivalla-
prestakalli í full 50 ár og rækt það starf með þeirri alúð,
samvizkusemi og skyldurækni, 'sem bezt verður á kosið, enda
verið afarvinsæll af söfnuðum sínum. Fyrir hönd kirkjunnar
og prestastéttarinnar vil ég leyfa mér að þakka honum alveg
sérstaklega hans óvenjulega langa og ágæta starf í þjónustu
kirkjunnar og allrar þjóðarinnar.
Tveir guðfræðikandidatar hafa tekið prestsvígslu á árinu:
Séra Hermann Gunnarsson, er vígður var til Mývatnsþinga
hinn 28. ágúst, og hafði þá fengið veitingu fyrir því prestakalli.
að afstaðinni lögmætri kosningu frá 1. sama mánaðar, og séra
Emii Björnsson, er vígður var 26. febrúar s.l., sem prestur hins
uýstofnaða Óháða fríkirkjusafnaðar í Reykjavík.
Að öðru leyti hafa þessar breytingar orðið, að því er embætta-
veitingar varðar á sviði kirkumálanna:
Séra Andrés Ólafsson, settur prestur í Staðarprestakalli í
Steingrímsfirði, var skipaður sóknarprestur þar frá 1. júní 1949
að undangenginni lögmætri kosningu.
Séra Þórarinn Þór var frá sama tíma skipaður sóknarprestur
1 Staðarprestakalli á Reykjanesi (Reykhólum) eftir löglega
kosningu. Hann var áður settur prestur þar.
Séra Guðmundur Guðmundsson, f. prestur að Brjánslæk, var