Kirkjuritið - 01.09.1950, Blaðsíða 58
210
KIRKJURITIÐ
frá 1. nóvember skipaður sóknarprestur í Hólsprestakalli í Bol-
ungarvík, eftir að hafa hlotið þar lögmæta kosningu.
Séra Kristján Bjarnason prestur á Raufarhöfn var frá 1.
júní þ. á. skipaður sóknarprestur í Reynivallaprestakalli, kos-
inn þar lögmætri kosningu.
Séra Stefán Eggertsson, settur prestur að Staðarhrauni, var
frá 1. júní skipaður sóknarprestur í Sandaprestakalli, að af-
staðinni kosningu, sem ekki varð lögmæt.
Séra Sigurjón Guðjónsson á Saurbæ var frá 1. marz skipaður
prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi, en hafði áður gegnt
því embætti sem settur.
Við guðfræðideild Háskólans hafa orðið þær breytingar, að
séra Björn Magnússon dócent var skipaður prófessor þar frá
1. júní 1949, séra Sigurbjörn Einarsson dócent skipaður pró-
fessor frá 1. okt. og séra Magnús M. Lárusson, er gegnt hefir
þar kennslustörfum undanfarið í stað prófessors Magnúsar
Jónssonar, settur prófessor við deildina frá 1. maí.
Á þessu vori hafa útskrifazt úr guðfræðideild fimm kandidat-
ar, allir með 1. einkunn. Gísli Halldórsson Kolbeins, Helgi
Tryggvason, Jónas Gíslason, Kristján Róbertsson og Magnús
Guðmundsson. Stunda nú fleiri nám í guðfræðideild en verið
hefir um mörg undanfarin ár, og má það vera oss öllum mikið
gleðiefni.
Óveitt eru að þessu sinni 15 prestaköll, og eru þau þessi:
1. Hofteigsprestakall í N.-Múlaprófastsdæmi, er sóknarprest-
urinn í Kirkjubæ annast ásamt sínu prestakalli, eins og
undanfarin ár.
2. Mjóafjarðarprestakall í S.-Múlaprófastsdæmi, er sóknar-
presturinn að Nesi í Norðfirði þjónar.
3. Sandfellsprestakall í A.-Skaftafellsprófastsdæmi, er próf-
asturinn í Bjarnanesi þjónar.
4. Kálfafellsstaðarprestakall í A.-Skaftafellsprófastsdæmi,
sem einnig er þjónað frá Bjamanesi.
5. Þingvallaprestakall í Árnessprófastsdæmi, og þjóna ÞV1
prófasturinn að Mosfelli í Mosfellssveit og presturinn að
Mosfelli í Grímsnesi.
6. Staðarhraunsprestakall í Mýraprófastsdæmi, og þjóna ÞV1
prestamir í Söðulsholti og Borg.