Kirkjuritið - 01.04.1971, Page 62
Mig minnir, að Nordal setti þegar fram í
bókmenntafyrirlestrum sínum í Háskólanum, að
velgengni Hallgríms fyrstu árin í Saurbœ sam-
fara viðbrigðunum frá Suðurnesjum hafi eflt
með honum ásetning að minnast pínu og dauða
Frelsarans. Fráfall Steinunnar litlu hefur og
haft mikil áhrif og dauðsföll vina, jafnframt
því sem viðhorf mótast með nýjum hœtti á því
aldursbili, er þá fœrist yfir Hallgrím.
Heima í Skálholti dregur að vísu seinna til
stórtíðinda og sendir Hallgrímur þangað eigin-
handarrit það, sem eitt hefur varðveitzt af
sálmunum.
An efa hefðu Passíusálmarnir aldrei orðið
til, ef Brynjólfur biskup Sveinsson hefði ekki
gripið inn í líf Hallgríms hvað eftir annað.
Má vel hugsa sér Brynjólf biskup svo algjör-
an gœfumann í sögu kristni okkar, bókmennta
og menningar, að einhvers konar tileinkun
vœri Passíusálmarnir honum.
Þegar, er Nordal gaf út lestrarbók sína, mátti
Ijóst vera, að hann teldi 44. Passíusálm meðal
þeirra allra beztu. Eitt hið fyrsta, sem við
tókum okkur á tungu í bernsku var og versið
úr þeim sálmi:
,,Vertu, Guð faðir, faðir minn — — —“
I höfuðkafla rits síns ber Nordal þenna
sálm saman við hinn 43. Veit ég ekki til
þess, að það hafi verið gert áður þannig,
og get ég skrifað undir margt af því, sem
Nordal segir hér, en að baki þessu máli hans
býr djúp hugsun, — margra ára, — mœtti
segja mér, og alvarleg umþenking ,,herrans
Jesú pínu og dauða"; hefur hún hér sannast,
sem fyrr, að vera ,,vissulega dýrmœt og hver
sig langvaranlega gefur til þeirrar umþenk-
ingar, og ber jafnan Jesú Kristí píslar minning
í sínu hjarta, sá geymir hinn dýrasta hlut."
Fertugasti og fjórði sálmurinn er mikill gim-
steinn og bjartur. Um hann leikur blœr himins
blíður, og er hann í ýmsum skilningi morgun-
verk. En þó má ekki gleyma nóttinni, sem
að baki er.
Vissulega búa sálmarnir tveir yfir miklum
andstœðum, og má telja þá fulltrúa þeirra,
hvorn um sig.
En byggð er hér brú. Eitt mesta tónskáld
veraldar hefur kallað frœgan kafla eins síns
mesta verks: Frá myrkri til Ijóss. Hann segir,
að sér hafi birzt grunntónn hans við að koma
úr dimmu herbergi inn í glaðabirtu.
Trú Hallgríms sœkir á brattann, upp á fjall
gleðinnar. Sjálfur var hann glaðsinna og
skemmtinn. Passíusálmarnir eru einnig Upp-
risusálmar.
I raun réttri eru Passíusálmarnir og Allt,
eins og blómstrið eina lífstjáningarverk, og
maður sannrar lífsgleði stillir þar hörpu sína.
Meðal annars þess vegna eiga Passíusálmarnir
greiðan aðgang að barnshjartanu. Faðir breið-
ir þar út faðminn.
Nordal leggur með réttu áherzlu á djúp
það, er skilur að 43. og 44. sálminn. En í
hinum fyrri segir þó:
,,Upp á þessi þín orðin traust
óhrœddur dey ég kvíðalaust
Passíusálmarnir eru ortir á sjónarhœð ofar
tímanna umbreytingum og ýmislegum smekk
kynslóðanna, en eitt höfuð orð þeirra er ekki
,,þar“ heldur ,,hér“, þ. e. þetta okkar líf hér
í heimi, að það sé í birtu trúarinnar. A hverj-
um stað og tíma eru þeir í gildi:
,,undir hönd drottins hér þá blíf".
,,Láttu Guðs hönd þig leiða hér
Rétt er að syndasektar mannsins gœtir mjög
í 43. Passíusálmi. Allt mannlegt er í molum,
en myrkur er þó ekki allt um kring. Fyrirheit
er fyrir stafni:
,,fullkomna skaltu eignast náð.“
Segja má, að 44. sálmur sé svo útlistun
á náð Guðs.
,,góðlyndur faðir Guð þinn er“.
Góðlyndur er eins konar einkunnarorð fyrir
allan sálminn. Okkur kemur nœrri á óvart, að
þetta orð skuli notað um Guð. Það þýðir
Ijúfur í umgengni nœrri að segja glaðsinna
sbr. góðsinnaður í Oddstestamenti og
Guðbrandsbiblíu. Manni kemur í hug ,,ljúfur
og kátur" í Heilrceðavísum Hallgríms.
Yfir 44. sálmi er mikil birta. Víðs fjarri virð-
60