Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1958, Side 57

Eimreiðin - 01.07.1958, Side 57
EIMREIÐIN 189 til Reykjavíkur, og hefur hún talið sér, eins og rétt var, skylt að láta málið til sín taka. Nefndin skrifar íslenzku stifts- yfirvöldunum, sem þá voru Moltke stiftamtmaður og Geir Vídalín biskup, 31. marz 1817 og segist hafa heyrt, að svonefnd Stórabrík eða Ögmundarbrík, merkileg fyrir sakir aldurs og listfengi, hafi verið flutt frá Skálholti til Eyrarbakka að for- lagi yfirvaldanna í því skyni, að hún yrði sett upp í Reykja- víkurdómkirkju, en hún hafi aldrei komizt lengra en á Eyr- arbakka og sagnir gangi um að hún hafi sætt þar mjög kæru- leysislegri meðferð. Kveður nefndin það skyldu sína að spyrj- ast fyrir um, hvernig þetta mál sé vaxið, hvort bríkin geti enn talizt hæfilegt skraut í dómkirkjuna, hvort enn séu óskir um að flytja hana til Reykjavíkur í því skyni, og ef ekki, ltvort hún teljist í því standi að hægt sé að flytja hana til Kaupmannahafnar og láta hana í þjóðsafnið sem frambæri- legan forngrip. Ef til vill má til sanns vegar færa, að danska fornleifa- nefndin hafi að einhverju leyti unnið okkur óþurftarverk með starfi sínu hér á landi. Það væri þó rangindi að bera hana sökum í sambandi við Skálholtsbríkina. Nefndin kom þar fram af háttvísi, sem ekki verður að fundið, og bjargaði því sem bjargað varð. Fyrir orð hennar létu stiftsyfirvöldin Sigurð Sívertsen verzlunarstjóra gera nákvæma skýrslu um ástand bríkarinnar og senda fornleifanefndinni. Er sú lýsing ljót, ekki sízt ef höfð eru í huga hin fögru orð Hannesar biskups um bríkina, og er sýnt af skýrslunni, að þá eru rytjur einar eftir af hinum gamla helgigrip, umgerð liðuð sundur, niyndirnar losnaðar af grunninum og málning og gv'lling að •nestu leyti af. Engu að síður óskaði nefndin þess, að leifar þessar yrðu sendar sér til Hafnar, og þá byrjuðu ný vand- ræði. Hver átti nú að pakka þessu niður og koma því til skips? Stiftsyfirvöldin skrifuðu I.ambertsen kaupmanni og háðu hann að láta smíða kassa og pakka niður myndunum og flytja þær svo á skipi sínu til Kaupmannahafnar. Lambertsen svaraði um hæl og neitaði alveg að láta smíða kassana eða eiga nokkuð við innpökkun, en lofaði að láta flytja bríkina til Hafnar, ef hún væri forsvaranlega innpökk- uð og væri komin til skips í miðjum ágúst í síðasta lagi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.