Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Qupperneq 16

Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Qupperneq 16
ERU STELPUR TRÚAÐRI E N STRÁKAR? Því er ekki að neita að það kemur á óvart varðandi bænakunnáttu barnanna hve mikill munurinn er á milli stráka og stelpna. Annaðhvort eru strákarnir latari við að nefna bænir sem þeir kunna eða þeir kunna einfaldlega mun færri bænir en stelpur. Sú er líklega raunin þar sem munurinn er það mikill að hann verður varla skýrður með því einu að strákarnir hafi verið latari við að tilgreina bænir sem þeir kunna þótt það kunni að vera hluti skýringar. I þessu sambandi er rétt að benda á að stelpur biðja almennt mun meira en strákar (sbr. Mynd 2). Fleira vekur athygli varðandi bænir og hugmyndir um bænir þegar kynin eru borin saman. Til dæmis kemur í ljós að heldur algengara er að stelpur líti svo á að í bæn tali þær við Guð (54% á móti 47%) meðan strákarnir líta frekar svo á að með bæn hughreysti þeir sig (18% á móti 13%) eða hugsi um eitthvað gott (26% á móti 22%). Þetta er e.t.v. ekki afgerandi munur en munur þó. Þegar spurt var um bæn- heyrslu kom hins vegar meiri munur í ljós þannig að hærra hlutfall stelpna en stráka telur sig fá bænheyrslu. 60% stelpna telja sig fá bænheyrslu oft eða stundum en meðal stráka er hlutfallið 47%. Þá telja tæp 23% stráka sig sjaldan eða aldrei fá bænheyrslu meðan hlutfallið er aðeins 13,5% meðal stúlkna. Þegar dregnar eru saman helstu niðurstöður varðandi bænaiðkun og reynslu af bæn kemur í ljós að bænaiðkun og bænakunnátta barnanna er töluverð. Tvö af hverjum þremur biðja oft eða stundum, flest kunna bænina Faöir vor og mjög mörg tilgreina aðrar bænir sem þau kunna. Stelpur eru almennt bænræknari en strákar, hærra hlutfall þeirra kann bænina Faðir vor og þær kunna mun fleiri bænir en þeir. Þá er það algengara viðhorf meðal stelpna en stráka að bæn sé samtal við Guð og töluvert hærra hlutfall stelpna telur að Guð svari bænum þeirra. Þátttaka í kristilegu æskulýðsstarfi Spurt var um þátttöku í kristilegu eða kirkjulegu æskulýðsstarfi. Markmiðið var að kanna þátttöku barnanna og unglinganna í slíku starfi, einkum með tilliti til þess hversu mikilvæg slík þátttaka hefur verið í trúarlegri uppeldismótun þeirra. Fyrst var spurt almennt um þátttöku í kristilegu félagsstarfi. í ljós kom að rúm 35% höfðu ekki tekið þátt í neinu kirkjulegu eða kristilegu æskulýðsstarfi, tæp 30% merkja við starf KFUM/KFUK og rúmlega 20% við barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. Milli fimm og sex prósent tilgreindu bæði KFUM/KFUK og æskulýðsstarf kirkjunnar og tæp 9% annað. Þegar kynin eru borin saman sést að stelpur eru mun virkari þátt- takendur í kristilegu æskulýðsstarfi en strákar (sjá Mynd 4). A myndinni sést að 45% stráka hafa ekki tekið þátt í kristilegu æskulýðsstarfi en aðeins 26% stelpna. Þegar börnin voru spurð hvort þau tækju núna þátt í kristi- legu æskulýðsstarfi kom í ljós að mikill minnihluti þeirra gerir það eða 22,1%. Þegar kynin eru borin saman sést sem fyrr að stelpur eru þó virkari, því 28% þeirra tóku þátt í kristilegu æskulýðsstarfi þegar spurt var en aðeins 15,7% stráka. Einnig var spurt hve oft börnin fara í kirkju. Samanburður milli kynjanna sýnir svipaða mynd og áður, þ.e. að stelpurnar fara oftar í kirkju eða á kristilegar sam- komur en strákar. Þannig fara tæp 33% stráka aldrei í kirkju á móti rúmum 23% stelpna. Rúm 19% stelpna fara viku- eða mánaðarlega en tæp 14% stráka. Þegar dregnar eru saman niðurstöður um þátttöku barna og unglinga í kirkju- 24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.