Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Blaðsíða 165

Uppeldi og menntun - 01.01.1999, Blaðsíða 165
JOHN DEWEY mála. Við verðum að kannast við það sem bætir okkur þetta upp - aukið umburð- arlyndi, meiri víðsýni í félagsmálum, meiri þekking á mannlegu eðli, vökulli gaum- gæfni við mat á innræti manna og túlkun félagslegra aðstæðna, meiri nákvæmni í aðlögun að ólíku fólki, bein snerting manna við meiri viðskipti. Þessi atriði hafa mikla þýðingu fyrir borgarbarnið nú á dögum. Samt er um raunverulegt vandamál að ræða: Hvernig eigum við að halda þessum kostum og koma samt inn í skólann með eitthvað sem sýnir hina hliðina á lífinu - störf sem krefjast persónulegrar ábyrgðar og þjálfa barnið með tilliti til áþreifanlegra staðreynda lífsins? Þegar við snúum okkur að skólanum komumst við að raun um að ein þeirra tilhneiginga sem mest ber á um þessar mundir er að taka upp svokallaða hand- eða verkmennt: smíðar, sauma og matreiðslu. Þetta hefur ekki verið gert „af ásettu ráði", með fullri vitund um að skólinn verði nú að sjá fyrir þeim þætti þjálfunar sem heimilið annaðist áður, heldur hefur þetta frekar verið gert af eðlishvöt, með því að prófa sig áfram og komast að raun um að slík vinna nær sterkum tökum á nemendum og gefur þeim eitthvað sem ekki var hægt að fá með neinum öðrum hætti. Vitund um raunverulega þýðingu hennar er enn svo óljós að vinnan er oft innt af hendi með hálfvelgju og hringlanda og án tengsla við aðrar greinar. Rökin sem ætlað er að réttlæta hana eru skelfilega ófull- nægjandi eða stundum jafnvel hreint og beint röng. Ef við ættum að yfirheyra jafnvel þá sem eru hlynntastir því að koma þessari vinnu inn í skólakerfið myndum við, býst ég við, almennt komast að því að meginrök þeirra væru að þess háttar vinna vekur áhuga og athygli barnanna alveg sjálfkrafa. Hún heldur þeim vökulum og virkum í stað þess að gera þau óvirk og þiggjandi. Börnin verða færari um og þess vegna líka fúsari að hjálpa til heima fyrir. Og þessi vinna býr þau að einhverju marki undir skyldustörfin síðar á ævinni - stúlkurnar undir það að vera duglegri húsfreyjur, ef ekki hreinlega matreiðslu- og saumakonur; drengina undir framtíðarstörfin (svo fremi iðnskólar væru nægilega margir í skólakerfi okkar). En sjónarhornið er, þegar á allt er litið, óþarflega þröngt. Við verðum að hugsa okkur tré- og málmsmíði, vefnað, saumaskap og matreiðslu sem aðferðir til að lifa og læra, ekki sem sérstakar námsgreinar. Við verðum að hugsa okkur þessi störf í félagslegri merkingu þeirra: sem dæmi um þá starfshætti sem halda samfélaginu gangandi, sem úrræði til að koma barn- inu í skilning um nokkrar frumþarfir manna í samfélagi, og sem aðferðir sem sýna hvernig menn hafa fullnægt þessum þörfum eftir því sem þeim hefur aukist innsýn og hugkvæmni. I stuttu máli sagt, við verðum að hugsa okkur þau sem hjálpartæki til að gera skólann sjálfan að raunverulegu, lifandi samfélagi, í stað þess að vera staður utan við samfélagið þar sem börn eiga að læra lexíur. Samfélag er hópur fólks sem haldið er saman vegna þess að það starfar eftir sameiginlegum leiðum, í sameiginlegum anda og með hliðsjón af sameiginlegum markmiðum. Sameiginlegar þarfir og markmið krefjast vaxandi samskipta í hugsun og vaxandi samkenndar. Grundvallarástæða þess að núverandi skóli getur ekki skipulagt sig sem náttúrlega félagseiningu er sú að einmitt þennan þátt sameigin- legrar og frjósamrar starfsemi vantar. Á leikvellinum, í leikjum og íþróttum, á fé- lagsleg skipulagning sér stað sjálfkrafa og óhjákvæmilega. Þarna er einhver starf- 163
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.