Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Side 7
FRÁ RITSTJÓRA
„Seint koma sumir - og koma þó!" segir gamalt máltæki. Uppeldi og menntun er enn
þriðjungi árs á eftir ártali sínu nú, en hefti ársins 2000 kemur þó út fyrir mitt ár 2001.
Þetta er vissulega ekki einstætt meðal vísindarita og kannski nokkur huggun að á
síðustu tveim ritstjómarárum hefur þó unnist eins og einn ársfjórðungur! Að gamn-
inu slepptu er þetta samt umhugsunarefni. Það er of algengt að háskólafólk hlaðist
verkum svo að það seinki verulega viðfangsefnum eins og þessu, því í raun hefði
þetta hefti átt að geta komið út fyrir áramót ef ekki hefðu komið til annir ritstjóra og
höfunda. Þetta er ekki sagt til þess að biðjast velvirðingar heldur aðeins til þess að
minna menn á að eitt af verkefnum framtíðarinnar í háskólastarfi hlýtur að vera að
draga úr vinnuálagi og skapa frjóar aðstæður til vísindaiðkana og útgáfu.
Umræðu er þörf, en það kann líka að vera skynsamlegt að horfa í fleiri áttir en
hina gútenbergsku. Undanfarin misseri hefur fólk rætt saman innan Kennarahá-
skóla íslands um nýtt vefrit, Netlu; nafnið er komið frá einum af höfundum síðasta
heftis Uppeldis og menntunar, Þuríði Jóhannsdóttur, og vísar með skemmtilegum
hætti bæði til Netsins og brenninetlunnar, því sannarlega er þörf á riti sem stingur!
Engin ákvörðun hefur verið tekin, en þessari Netlu yrði síður en svo stefnt til
höfuðs Uppeldi og menntun heldur gæti hún miklu fremur orðið eins konar gróðrar-
stöð fyrir prentaða útgáfu. Greinar sem fengið hafa dálitla eldskírn í Netlu verða
áreiðanlega boðnar velkomnar í prentuð rit og þar með einmitt fallist á þá skoðun
að ritun slíkra greina sé ferli en ekki líkjandi við fæðingu Aþenu, sem stökk alsköp-
uð úr höfði föður síns. Ný tækni mun kenna mönnum að hugsa og vinna með nýj-
um hætti. Það tekur tíma, en það gerist.
í þessum níunda árgangi Uppeldis og menntunar kennir ólíkra grasa. Listgreinin
dansmennt fer fyrst en síðan fjalla sérfræðingar um náms- og starfsfræðslu, nátt-
úrufræðimennt, félagslega stöðu barna, tvítyngd leikskólaböm og boðskipti mikið
fatlaðra barna. Undir fyrirsögninni Um starfið er birtur fyrirlestur um fagmennsku
og kafli ritsins um bækur og námsefni fjallar um stærðfræðing og umhverfismennt.
- Efnið sýnir breidd þeirrar stofnunar sem að tímaritinu stendur og á vonandi eftir
að blasa enn betur við í næstu árgöngum.
Þegar horft er til baka yfir þá níu árganga sem nú hafa birst af Uppeldi og
menntun er ljóst að mikið af efni tímaritsins er niðurstöður eigind- eða megindlegra
rannsókna. Tölfræðilega úrvinnslu gagna ber þar mjög hátt. Þetta skal sannarlega
ekki lastað en hins vegar er freistandi að spyrja hvort tímarit sem kennir sig við
Kennaraháskóla íslands og er gefið út af honum þurfi ekki líka að egna til um-
ræðna, verða vettvangur skoðanaskipta um álitamál, taka undir það sem prófessor
Trond Berg Eriksen í Ósló hefur orðað ágætlega: Tilgáta er tilraunastofa (En teori er
et laboratorium). Kennaramenntunin þarf stöðugt á nýjum tilgátum (þ.e. tilrauna-
stofum) að halda og þar bíða mikil verkefni fyrir tímaritið og höfunda þess. Það er
von mín þegar ég óska nýjum ritstjóra góðs í starfi að Uppeldi og menntun eigi eftir
að verða hvassari geir en hingað til, nái með tíu ára afmælinu að verða ritið sem
menn tala um, vitna til og viðurkenna að skiptir máli.
5