Uppeldi og menntun - 01.01.2000, Blaðsíða 82
TIU ARA BORN STANDA VEL AÐ VIGI
aðlagaður í einstökum atriðum fyrir hvert land. Þar var m.a. spurt um uppvöxt
barna og þroska, félagslegar aðstæður og einnig voru kvarðar hluti af listanum.
Flest mælitæki önnur en foreldralistinn eru bandarísk og því sótt út fyrir hið nor-
ræna menningarsvæði og þar sem rannsóknarefnið er í megindráttum félags- og
sálfræðilegs eðlis (háð umhverfi) þarf að hafa þetta í huga og beita varúð við túlkun
niðurstaðna. Þetta kom sérstaklega til athugunar við þýðingu kvarðanna og var
leitast við að laga orðalag að viðkomandi menningu.
Gögnum var safnað 1992 til 1994. Unnið var úr niðurstöðum í hverju landi og
einnig voru ákveðin atriði úr gögnunum borin saman. Þátttaka í rannsókninni var
mjög góð í öllum löndunum, rúmlega 90% barnanna, allir umsjónarkennarar og
yfir 80% foreldra tóku þátt. Sveitarfélögin voru valin þannig að minnst væru 500
börn í árgangi. íslenski hlutinn var þó takmarkaður við 200 börn, foreldrar þeirra
(foreldrahópur A) og kennarar voru einnig beðnir að svara spurningalistum og að
auki tóku 300 foreldrar tíu ára barna þátt í rannsókninni (foreldrahópur B). Alls
náði foreldrahlutinn því til um þriðjungs tíu ára barna árgangsins í Reykjavík en til
færri bama. Börnin voru í sjö reykvískum skólum. Leitast var við að velja ólík
hverfi og ná þannig sem bestri mynd af íbúasamsetningu borgarinnar.3 Svarhlutfall
íslensku barnanna var 95%, foreldra 84% í foreldrahópi A, 81% í foreldrahópi B og
meðal umsjónarkennara 100%.
Við forkönnun og samanburð á útkomum milli landa virtust mælitækin traust,
einnig þegar höfð var hliðsjón af útkomum sömu kvarða í fyrri rannsóknum. Þetta
þýðir auðvitað ekki að hindrunum við túlkun á menningarmun sé þar með rutt úr
vegi. Fylgni þátta og kvarða var athuguð og við samanburð milli landanna var m.a.
byggt á marktektarútreikningum, meðaltölum og staðalfrávikum.
NORRÆNN SAMANBURÐUR
Aðalniðurstaða norrænu rannsóknarinnar er að tíu ára börnin í sveitarfélögunum
sex bjuggu flest í umhverfi er stuðlaði að þroska þeirra og þau bjuggu yfirleitt yfir
margvíslegri hæfni og bjargráðum. Utkoman hvað snerti aðstæður og einstaklings-
bundna þætti var því í meginatriðum jákvæð í þeim skilningi sem vikið var að fyrr.
Samanburðurinn milli landanna sýndi að hæfni barnanna var að mörgu leyti lík,
bæði hvað snerti stig og samsetningu. Þetta kunna að virðast sjálfsagðar niður-
stöður í norrænum nútíma velferðarþjóðfélögum. En málið er ekki svona einfalt.4
Tökin á viðfangsefninu voru nokkuð ólík því sem oft hefur viðgengist í skyld-
um rannsóknum, þar sem athyglinni hefur oft verið beint að sérkennum barna í
áhættuhópum. Flér var ákveðið að rartnsaka tilfinningalega og félagslega áhættu-
þætti í ljósi færni, að athuga fyrst færni barna og skoða síðan áhættu í ljósi hennar.
Auk áðurnefndrar jákvæðrar útkomu flestra barna leiddi rannsóknin í ljós, að
^ Um var að ræða eftirtalin hverfi: Árbæjar-, Fella-, Folda-, Húsa-, Laugames- og Seljahverfi og Vesturbær norð-
an Hringbrautar.
^ Þegar rætt er um lönd og þjóðemi hér til hagræðis er verið að bera saman tíu ára bama árganga í ákveðnum
sveitarfélögum en ekki heilum löndum.
80