Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Side 43
FRIÐRIK H. JÓNSSON
ANNA HULD ÓSKARSDÓTTIR
HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR
SKILNINGUR BARNA
Á ÞJÓÐFÉLAGSSKIPAN
Athugaður var skilningur barna á þjóðfélagsskipan. Sjötíu og tvö reykvísk börn á aldrinum
sex til ellefu ára sáu Ijósmyndir af fólki við störf. Lýstu þau starfinu og mátu sfðan hvers
konar húsnæði og bíl fólkið væri líklegt til að eiga. Einnig svöruðu börnin almennum þekk-
ingarspurningum og spurningum um atvinnumál. 1 Ijós kom munur á skilningi á þjóð-
félagsskipan, á almennri þekkingu og þékkingu á atvinnumálum eftir aldri. Sterk tengsl
voru á milli almennrar þekkingar og skilnings á þjóðfélagsskipan, milli skilnings á þjóð-
félagsskipan og þekkingar á atvinnumálum og milli almennrar þekkingar og þekkingar á
atvinnumálum.
Síðastliðna tvo áratugi hafa áherslur breyst í rannsóknum á skilningi barna á um-
heiminum. Rannsóknir á skilningi barna á efnisheiminum (sjá t.d. Piaget 1960) hafa
vikið fyrir rannsóknum á félagsskilningi (social cognition) og þá aðallega á ýmsum
hliðum mannlegra samskipta (Damon 1977, 1981). Rannsóknir á félagsskilningi
leiddu í ljós að kennismíðar’ sem skýrðu breytingar á skilningi á efnisheiminum
dugðu ekki til að gera grein fyrir breytingum á félagsskilningi. Til þess þurfti ann-
ars konar hugtök og skýringakerfi (Damon 1981). Til hliðar við þessa meginstrauma
eru rannsóknir á skilningi barna á þjóðfélagsskipan (Friðrik H. Jónsson 1985). Um
þær gildir það sarna og um félagsskilning: Til að gera grein fyrir breytingum á skiln-
ingi barna á þjóðfélagsskipan þarf sérstök hugtök og skýringakerfi.
Hugtakið þjóðfélagsskipan vísar til margra þátta. Undir það fellur t.d. skilning-
ur á stjórnskipan, stéttaskiptingu, eðli peninga, notkun þeirra og dreifingu. Öll
þessi atriði koma því til greina sem viðfangsefni rannsóknar á skilningi barna á
þjóðfélagsskipan, en misauðvelt er að koma þeim á form sem hentar börnum. I
þessari rannsókn var valinn sá kostur að ræða við börn um atvinnu fólks, enda sýna
rannsóknir að börn ráða við það viðfangsefni (Friðrik H. Jónsson 1985), og leiða
síðan talið að tengslum atvinnu við fjárhag, húsnæði og bílaeign. Ef börn skilja
hvernig atvinna, efnahagur og eignir spila saman, þá er raunhæft að álykta að þau
hafi nokkurn skilning á þjóðfélagsskipan.
Fullyrða má að skilningur á þjóðfélagsskipan á upphaf sitt í reynslu einstakl-
ingsins. En óljóst er hvernig þessi skilningur vaknar og hvað glæðir hann. Skiln-
ingur á mannlegum samskiptum þróast í gegnum dagleg tengsl við annað fólk en
skilningur á þjóðfélagsskipan verður til eftir óljósari krókaleiðum. Börn heyra talað
1 Hór er sérstaklega verið að vísa til kenningar J. Piagets um þróun rökhugsunar.
Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 2. árg. 1993
41