Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Page 73

Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Page 73
ÞORLÁKUR KARLSSON, GUÐRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, ÞÓRÓLFUR ÞÓRLINDSSON vellíðan. Andstæðan er lífstíll sem einkennist af „áhættuhegðun" ýmiss konar (t.d. reykingum og áfengisneyslu), sálrænum vandamálum (til dæmis þunglyndi og kvíða) og lítilli stjórn á eigin lífi. I lífsstílskenningum er ekki gert ráð fyrir skýru orsakasamhengi, en gengið út frá því að fylgni sé á milli frumbreytna og fylgibreytu annars vegar og innbyrðis fylgni frumbreytna hins vegar.2 'Enda þótt lífsstílskenningum hafi ekki verið beitt kerfisbundið til þess að skýra skróp nemenda hafa sumir rannsóknarmenn athugað tengsl skróps við ýmiss konar hegðun nemenda og lífsstíl þeirra, sem truflað getur skólagöngu þessara nemenda. McCann og Austin (1988) rannsökuðu nemendur sem taldir voru í hættu (students at risk), en skróp og áfengis- og fíkniefnaneysla er dæmigerð fyrir þann hóp. Bempechat og Ginsburg (1989) benda á að skróp og neysla áfengis eru meðal fleiri þátta sem hafa jákvæða fylgni við brottfall nemenda úr skóla. Brown (1984) sýndi auk þess fram á miklar reykingar hjá þeim sem skrópuðu mikið. Red-Horse og Red- Horse (1981) benda á þessi tengsl áfengis og mikils skróps hjá sumum unglingum af indíánakyni í Bandaríkjunum og virðast þeir unglingar sem skrópa mikið eiga við fleiri vandamál að glíma en aðrir. I nokkrum erlendum rannsóknum hefur sjónum verið beint að tengslum skróps við líðan nemenda, en margt bendir til þess að mikið skróp nemenda tengist and- legri vanlíðan þeirra. í rannsókn Ficula og samstarfsmanna hennar (1983) kom í ljós að nemendur sem skrópuðu mikið voru streittari og daprari en þeir sem skrópuðu minna. Þá var sýnt fram á í tveimur öðrum rannsóknum að þeir nemendur sem skrópuðu mikið höfðu minna sjálfsálit en þeir sem skrópuðu minna (Englander, 1986; Reid, 1982). Ljóst er að tiltölulega fáar rannsóknir hafa verið gerðar á sambandi skróps við ýmsa þætti í fari og hegðun nemenda. Flestar rannsóknir hafa beinst að því að leita leiða til að draga úr skrópi, þar sem það er talið hafa slæm áhrif á nemendur og skólastarf. Nauðsynlegt er að gera hér bragarbót og rannsaka betur skróp og þætti tengda því. Sérstaklega er þetta mikilvægt þar sem fáar eða engar rannsóknir eru til á skrópi framhaldsskólanemenda á Islandi. Þannig er ekki getið um neina rannsókn á skrópi nemenda í framhaldsskólum í yfirlitsritinu Athuganir á íslenskum ungl- ingum 1970-1990 (Guðríður Sigurðardóttir, Hrönn Jónsdóttir og Þóroddur Bjarna- son, 1991), en þar eru tilgreindar fleiri en 100 rannsóknir. Þó er bent á tvær rann- sóknir úr rannsóknarverkefninu „Unge i Reykjavik", þar sem fjallað er nokkuö um skróp 14 ára unglinga í Reykjavík (Brynjólfur Brynjólfsson, 1983; Pétur Jónasson, 1978). Þetta er athyglisvert í ljósi þess að skólamenn telja áhrif skróps slæm og mikil fyrirhöfn er við að stemma stigu við skrópi. Erfitt er að ákvarða hvort einstaka þættir sem tengjast skrópi eru orsakir þess eða afleiðingar, enda verður því ekki við komið í þessari rannsókn. I henni var kannað samband skróps við ýmsa þætti í skólastarfi nemenda, t.d. námsárangur, 2 Frumbreyta (independent variable) er áhrifaþáttur eöa breyta sem notuð er til að „skýra" á tölfræðilegan hátt dreifingu fylgibreytu (dependent variable). Flokkun breytna í frumbreytur og fylgibreytur í spurninga- könnunum ákvarðast af þeim kenningum sem stuðst er við hverju sinni. 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.