Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Side 115
HAFSTEINN KARLSSON
margt án kennslubóka. Að vísu kostar það örlítið meiri skipulagsvinnu fyrir kenn-
arann að hausti. Hann þarf að skipuleggja allan veturinn en sú vinna helst að sjálf-
sögðu í hendur við skólanámskrárgerð. Nauðsynlegt er að skipuleggja nákvæmar
eins til tveggja mánaða tímabil. Það er þó óþarfi að gera að hausti, jafnvel betra að
gera það reglulega allan veturinn. Þetta er svolítið meiri vinna en í staðinn uppsker
kehnarinn áhugasamari nemendur og skemmtilegri vinnu.
Það er mjög mikilvægt að foreldrar fylgist með þegar svo veigamiklar breyt-
ingar eru gerðar á móðurmálskennslunni. I upphafi kynntum við fyrirhugaðar
breytingar á foreldrafundi. Þessi mál komu svo reglulega upp á fundum með for-
eldrum og mátti greina ákveðinn ótta sumra þeirra við að nemendur væru ekki að
gera það sama og gert er í flestum öðrum skólum. Allir voru þó ánægðir með okkar
aðferðir en nokkrir héldu að með þeim lærðu nemendur ekki það sem þeir ættu að
læra heldur eitthvað annað. Eitthvað sem ekki skipti máli í skólakerfinu. Þegar
þetta kom í ljós var haldinn foreldrafundur þar sem farið var rækilega yfir Aðal-
námskrá grunnskóla og hvernig okkar aðferðir féllu að henni. Síðan hafa foreldrar
verið mjög sáttir og ánægðir og styrkt okkur í starfinu.
Að lokum má spyrja hvort þessi kennsluaðferð geri nemendur betri í móður-
málinu. Því er erfitt að svara þar sem enginn samanburður er til. Hins vegar má
draga ályktanir af reynslunni. Nemendur takast meira á við móðurmálið en áður og
velta því meira fyrir sér. Það er erfitt að koma hugsun sinni óbrenglaðri á blað og
það reynir mikið á þann sem það gerir. Þá krefjast vinnubrögðin þess að nemendur
skoði verk sín og annarra á gagnrýninn hátt og hjálpist að við að betrumbæta þau.
Frumleiki og sköpunarþörf fær meiri útrás en áður var. Nemendur þurfa að lesa,
skrifa, tala og vonandi hugsa meira. Þeir nota alla þætti tungumálsins miklu meira
í sínu móðurmálsnámi en þeir gerðu áður. Sú þjálfun gefur þeim væntanlega betra
vald á móðurmálinu.
Heimildir
Baldur Sigurðsson. 1992. Á að kenna málfræði í skólum eða iðka hana? Ný mennta-
mál 10,3:35-36.
Ellis, Sue og Gill Friel. 1991. Inspirations for Writing. Leamington Spa, Scholastic
Publications.
Guðmundur B. Kristmundsson. 1992. Börn og ritun. Reykjavík, Námsgagnastofnun.
Hafsteinn Karlsson. 1991a. Að lesa og skrifa. Villingaholt, Villingaholtsskóli.
Hafsteinn Karlsson. 1991b. Heildstætt móðurmálsnám - skýrsla um próunarverkefni í
Villingaholtsskóla. [Þróunarverkefni sem Þróunarsjóður grunnskóla styrkti
1990-1991].
Indriði Gíslason og Guðmundur B. Kristmundsson (ritstj.). 1987. Lestur - mál.
Reykjavík, Iðunn.
Irvin, J. L. 1990. Reading and the Middle School Student. Boston, Allyn and Bacon.
113