Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Qupperneq 135

Uppeldi og menntun - 01.09.1993, Qupperneq 135
RAGNHEIÐUR BENEDIKTSSON SKÓLASTARFIÐ UNDIRBÚIÐ Fram til þessa hefur höfundur þessarar greinar tekið þátt í undirbúningi við að skipuleggja með kennurum og skólastjórn hvaða námseiningar skuli kenna, athuga hvort til greina komi að einhverjir kennarar skólans ráðist í að þýða eina náms- einingu til viðbótar við þær sem áður hafa verið þýddar, hvaða tímabil henti vel, athuga hvað sé til af námsgögnum, leggja á ráðin um tölvur fyrir verkefnið, panta gögn frá National Geographic Society og Námsgagnastofnun o.s.frv. Setjum svo að tímabil Kids network-einingar sé að hefjast. Það hafi orðið að ráði að tvær bekkjardeildir 12 ára nemenda í Melaskóla taki samtímis þátt í námseiningu um súrt regn með sameiginlegum aðgangi að gagnabankanum ytra. Bréf með hug- búnaði og aðgangsorðum okkar er komið og einnig askja með tvenns konar pH- strimlum. Kennarar viðkomandi bekkjardeilda eru búnir að skipta nemendum í hópa í samræmi við uppástungu í kennsluleiðbeiningum. Onnur Apple IIGS-tölvan er til skiptis í viðkomandi bekkjum til að kynna nemendum hugbúnaðinn. Hin er í tölvu- herbergi skólans. Þangað nær símalína sem teygir jafnframt anga sína inn í vinnu- herbergi kennara. Sumir kennarar kjósa að ég komi inn í bekkinn til þeirra og kynni nemendum forritið. Aðrir taka þennan þátt að sér sjálfir. Kennararnir eru búnir að koma sér saman um hvaða tími henti þeim til að senda mér sinn hópinn hvor úr bekkjum sínum á ákveðnum tíma inn í tölvuherbergi til að prófa tölvusamskiptin. Ég athuga hvort einhverjir aðrir kennarar skólans hafi í hyggju að smella sér á umræddum tíma inn á Islenska menntanetið í vinnuherbergi kennara. Ef svo er ekki, er tölvusamskiptatíminn fastmælum bundinn. Ég spyr kennarana hvort þeir geti skotist sjálfir með krökkunum inn í tölvu- herbergi. Þannig gæti ég slegið tvær flugur í einu höggi, kynnt kennurunum tölvu- samskiptin um leið og nemendum. Stefnt er að því að kennarar taki þennan þátt að sér strax og færi gefst. Nemendur slá hnattstöðu skólans inn í gagnaskrá forritsins. Þeir greina frá aldri og fjölda í hópnum okkar og hvort við búum í þéttbýli eða dreifbýli. Þeir skrá jafnframt nafnið á rannsóknarhópnum sínum, sem er hluti aðgangslykilsins að gagnabankanum ytra. Til skýringar skal þess getið að hver nemendahópur (ein eða tvær bekkjardeildir) vinnur náið með 12-15 öðrum ámóta hópum úti í heimi sem svonefndur rannsóknarhópur. Rannsóknarhópurinn er hluti úr heildarhópnum sem tekur þátt í einingunni um súra regnið með okkur. Að þessu sinni eru 350 nem- endahópar í heildarhópnum. Nemendur geyma skrána og samþykkja að henni sé stungið í póstpoka forrits- ins. Þeir opna símavalmyndina, slá inn lykilorð og biðja um að sent sé að bragði. Þá birtast tilkynningar á skjánum. Nú magna ég spennuna eftir mætti og læt nemendur fylgjast grannt með öllu sem gerist. Þarna verðum við að vera rösk að þýða hrað- fleygar tilkynningar af ensku yfir á íslensku. Aður fyrr prófaði ég tölvusamskiptin áður en nemendur mættu til leiks í upp- hafi hvers nýs námstímabils. Þá var ég sjálf óöruggari í ýmsum atriðum sem tölvu- 133
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.