Tímarit lögfræðinga - 01.12.1998, Page 94
konar skuldbindinga og getur hann haft í för með sér beitingu hinna alvarlegri
vanefndaúrræða, t.d. riftunar og gjaldfellingar.
Skuldari, sem innt hefur greiðslu sína af hendi við kröfuhafa með því að greiða
hana til pósthúss, ræður oft ekki atburðarásinni eftir það. Skuldari ákvarðar
greiðslutímamarkið, og hann veit, hversu langan tíma það almennt tekur að koma
greiðslunni til skila með þeim hætti. Hann hefur hins vegar engin tök á að fylgja
greiðslunni eftir með neinum hætti eða staðreyna, hvenær hún kemur til kröfuhafa.
Til þess að létta skuldara efndimar með þessum hætti, er stundum svo ákveðið, að
greiðsla teljist innt af hendi á réttum tíma, ef hún er afhent til pósthúss eða banka
fyrir lok umsamins greiðslufrests. Þannig segir t.d. í 3. mgr. 33. gr. húsaleigul., að
leigjanda sé ávallt heimilt að inna greiðslu af hendi í banka eða senda í pósti með
sannanlegum hætti. Greiðsla með þeim hætti telst þá greidd á réttum greiðslustað
og þann dag, sem hún er innt af hendi í bankanum eða pósthúsinu.
I 7. gr. reglugerðar nr. 183/1990, um skil á staðgreiðslu, segir, að staðgreiðslu-
fé ásamt skilagrein eða gíróseðli þurfi að hafa borist inn á gíróreikning eða á
skrifstofu innheimtumanns eigi síðar en á eindaga. Dagsetning greiðslukvittunar
innheimtumanns staðgreiðslu eða kvittun á gíróseðli er sönnun fyrir því, að skil
hafi verið gerð á réttum tíma. Póstlagning greiðslu fyrir eindaga kemur ekki í veg
fyrir álagsbeitingu, ef greiðsla berst eftir eindaga.Um greiðslu á launaskatti með
gíróseðli sjá H 1989 1782. Þar var gjalddagi launaskatts 15. ágúst 1987 og
eindagi 15. september sama ár. Þann dag greiddi skuldari skattinn með D-gíró-
seðli í viðskiptabanka sínum, og bankinn greiddi innheimtumanni (tollstjóra) þá
fjárhæð með ávísun, sem barst honum 17. september 1987. Var greiðslumáti þessi
talinn jafngilda póstlagningu í skilningi 8. tl. skýringa á bakhlið launaskatts-
seðilsins, og var skuldari því sýknaður af kröfu um greiðslu dráttarvaxta.
I þessu sambandi skal getið reglugerðar nr. 529/ 1989, um framtal og skil á
virðisaukaskatti. Þar segir, að það teljist fullnægjandi skil á virðisaukaskatti:
1. Ef greitt er í banka, sparisjóði eða pósthúsi í síðasta lagi á gjalddaga.
2. Ef greitt er hjá innheimtumanni í síðasta lagi á gjalddaga.
3. Ef póstlögð greiðsla hefur borist innheimtumanni í síðasta lagi á gjalddaga.
Svipuð regla og fram kemur í 3. mgr. 33. gr. húsleigul. hefur í Danmörku
verið nefnd póstreglan, og á hún sérstaklega við, þegar vanefnd greiðslu getur
haft í för með sér beitingu hinna alvarlegri vanefndaúrræða, t.d. varðandi
greiðslu húsaleigu. Er þar í landi litið svo á, að greiðsla sé innt af hendi á póst-
húsi, þegar pósthúsið hefur veitt greiðslunni viðtöku, t.d. til sendingar með
póstávísun eða í gíró. I Danmörku er póstreglan lögfest hvað varðar greiðslu
húsaleigu, og hún er í framkvæmd einnig viðurkennd hvað varðar greiðslu
skatta og annarra opinberra gjalda. Sending hvort heldur sem er almenns bréfs
eða ábyrgðarbréfs með tékka til kröfuhafa, telst í Danmörku ekki greiðsla til
pósthúss. í þeim efnum gildir sú regla, að greiðsla telst þá fyrst innt af hendi,
þegar hún er komin til kröfuhafa, sbr. Ufr. 1980 453.84
84 Sjá nánar Bernhard Gomard: Obligationsret I, bls. 124.
346