Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1928, Qupperneq 44
§ 38, 39 og 40
28
Matt. 5
Lúk. 6
og góða og rigna yfir réttláta og rangláta.
46Því að ef þér elskið þá, sem yður
elska, hvaða laun öðlist þér þá? Gjöra
ekki jafnvel tollheimtumennirnir hið
sama? 47 Og ef þér heilsið aðeins
bræðrum yðar, hvað frábært gjörið þér
þá? Gjöra ekki jafnvel heiðnir menn
hið sama?
Sbr. v. 45
48Verið þér því fullkomnir, eins og
yðar himneski faðir er fullkominn.
32 Og þótt þér elskið þá, sem yður
elska, hvaða þökk eigið þér skilið fyrir
það? Því að syndarar elska einnig þá,
sem þá elska. 33 Og þótt þér gjörið
þeim gott, sem yður gjöra gott, hvaða
þökk eigið þér skilið fyrir það? Því
að syndarar gjöra og hið sama. 34 Og
þótt þér lánið þeim, sem þér búist við
að fá það hjá aftur, hvaða þökk eigið
þér skilið fyrir það? Syndarar lána
einnig syndurum, til þess að þeir fái
jafnmikið aftur. 35Nei — elskið óvini
yðar, og gjörið gott og lánið, án þess
að vænta nokkurs í staðinn, og þá
munu laun yðar verða mikil, og þér
munuð verða synir hins hæsta, því að
hann er góðgjarn við vanþakkláta og
vonda. 36Verið miskunnsamir eins og
faðir yðar er miskunnsamur.
§ 39. Um ölmusu.
23. Matt. 6i—4
1 Gætið yðar, að fremja ekki réttlæti yðar fyrir mönnunum, til þess að
verða séðir af þeim; annars hljótið þér ekki laun hjá föður yðar, sem er í
himnunum.
2Þegar þú því gefur ölmusu, þá lát ekki blása í básúnu fyrir þér, eins
og hræsnararnir gjöra í samkundunum og á strætunum, til þess að þeir hljóti
lof af mönnum. Sannlega segi eg yður, þeir hafa tekið út laun sín. 3En þegar
þú gefur ölmusu, þá viti vinstri hönd þín ekki hvað hægri hönd þín gjörir,
4 til þess að ölmusa þín sé í Ieyndum, og faðir þinn, sem sér í leyndum, mun
endurgjalda þér.
§ 40. Um bænir.
24. Matt. 65—s
50g þegar þér biðjist fyrir, þá verið ekki eins og hræsnararnir, því að
þeim er ljúft að biðjast fyrir standandi í samkundunum og á gatnamótunum,
til þess að verða séðir af mönnum. Sannlega segi eg yður, að þeir hafa tekið
út laun sín. 6En þegar þú biðst fyrir, þá gakk inn í herbergi þitt, og er þú
hefir lokað dyrum þínum, þá bið föður þinn, sem er í leyndum, og faðir þinn,