Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1928, Page 50
§ 51. Vegirnir tveir.
35. Matt. 7i3-i4
LÚk. 1323—24
13Gangið inn um þrönga hliðið;
því að vítt er hliðið og breiður veg-
urinn, er liggur til glötunarinnar, og
margir eru þeir, sem ganga inn um
það; 14því að þröngt er hliðið og
mjór vegurinn, er liggur til lífsins, og
fáir eru þeir, sem finna hann.
23 En einhver sagði við hann:
Herra, eru það fáir, sem hólpnir
verða? Og hann sagði við þá:
24Kostið kapps um að komast inn
um þröngu dyrnar; því að margir,
segi eg yður, munu leitast við að
komast inn og ekki geta.
§ 52. Varað við falsspámönnum.
36. Matt. 7i5—20
15Gætið yðar fyrir falsspámönnum,
er koma til yðar í sauðaklæðum, en
eru hið innra glefsandi vargar; 16 af
ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá.
Hvort geta menn lesið vínber af þyrn-
um eða fíkjur af þistlum? 17Þannig
ber sérhvert gott tré góða ávöxtu, en
skemt tré ber vonda ávöxtu. 18Gott
tré getur ekki borið vonda ávöxtu,
ekki heldur skemt tré borið góða ávöxtu.
19Hvert það tré, sem ekki ber góðan
ávöxt, er upp höggvið og því í eld
kastað. 20 Af ávöxtum þeirra skuluð
þér því þekkja þá.
Sbr. 1235
Lúk. 643—45
43Því að ekki er til gott tré, sem
ber skemdan ávöxt; ekki heldur skemt
tré, sem ber góðan ávöxt. 44Því að
sérhvert tré þekkist af ávexti sínum;
því að ekki lesa menn fíkjur af þyrn-
um og ekki skera menn vínber af
þyrnirunni.
45Góður maður ber gott
fram úr góðum sjóði hjarta síns, en
vondur maður ber vont fram úr vond-
um sjóði; því að af gnægð hjartans
mælir munnur hans.