Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1928, Qupperneq 64
§ 67 og 68
48
24Ekki er lærisveinninn yfir meistaranum, ekki heldur þjónninn yfir hús-
bónda sínum; 25nóg er lærisveininum að verða sem meistari hans og þjónin-
um að verða sem húsbóndi hans. Hafi þeir kallað húsföðurinn Deelsebúl, hve
miklu fremur þá heimilismenn hans?
§ 68. Áminning um djörfung og traust. Sbr. § 145.
57. Matt. IO26—33
26 Óttist þá því eigi;
því að ekkert er það hulið, er ekki
verði opinbert, né leynt, er ekki verði
kunnugt. 27 Það, sem eg segi yður
í myrkrinu, skuluð þér tala í birt-
unni, og það, sem þér heyrið hvíslað í
eyra, skuluð þér prédika
á þökum uppi.
28 Og hræðist eigi þá, sem
líkamann deyða, en geta eigi deytt
sálina;
en hræðist heldur þann, er mátt hefir
til að tortíma bæði sálu og líkama í
helvíti.
29Eru eigi tveir spörvar seldir fyrir
einn smápening? og ekki fellur einn
þeirra til jarðar án vilja föður yðar* *);
30 já, jafnvel hárin á höfði yðar
eru öll talin. 31Verið því óhræddir;
þér eruð meira verðir en margir
spörvar. 32Hver
sem því kannast við mig fyrir mönnunum,
við hann mun eg einnig
kannast fyrir föður mínum á himnum.
33 En hver sem afneitar mér fyrir mönn-
unum, honum mun eg og afneita fyrir
föður mínum á himnum.
Lúk. 122—9
2En ekkert er það hulið, er ekki
verði opinbert, né leynt, er ekki verði
kunnugt. 3Því mun alt það, sem þér
hafið talað í myrkrinu, heyrast í birt-
unni, og það sem þér hafið hvíslað í
herbergjunum, það mun kunngjört
verða á þökum uppi. 4En eg segi yður,
vinir mínir: Hræðist ekki þá, sem
líkamann deyða, og geta ekki að því
búnu meira gjört. 5En eg skal sýna
yður, hvern þér eigið að hræðast;
hræðist hann, sem eftir að hann hefir
líflátið, hefir vald til að kasta í
helvíti; já, eg segi yður, hræðist hann.
6Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir
tvo smápeninga? Og þó er ekki einn
af þeim gleymdur fyrir Guði. 7Meira
að segja, jafnvel hárin á höfði yðar
hafa öll verið talin; verið óhræddir,
þér eruð meira verðir en margir
spörvar. 8En eg segi yður: hver sá
sem kannast við mig fyrir mönnunum,
við hann mun og manns-sonurinn
kannast fyrir englum Guðs.
9En sá, sem afneitar mér fyrir mönn-
unum, honum mun verða afneitað fyrir
englum Guðs.
Matt. IO24 = Lúk. 640. Sbr. a) Jóh. 13i6: 16Sannlega, sannlega segi eg yður: ekki
er þjónn meiri en húsbóndi hans; ekki er heldur sendiboði meiri en sá, er sendi hann. —
b) Jóh. 152o: 30Minnist orðsins, sem eg hefi talað til yðar: Ekki er þjónn meiri en hús-
bóndi hans. Hafi þeir ofsótt mig, þá munu þeir líka ofsækja yður; hafi þeir varðveitt mitt
orð, munu þeir og varðveita yðar.
*) Eða: án vitundar föður yðar (orðrétt: án föður yðar).