Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 8
6
aðgangur að verkfræðideild og tannlæknanámi takmarkazt
nokkuð m. a. af skorti á húsrými, sem ekki hefir enn tekizt
að ráða bót á. Um hitt atriðið, að kennarar fylgist með náms-
ástundun stúdentanna, eða láti sig slíkt engu varða, er það
að segja, að það er sjálfsagt hægt að hugsa sér kennara, sem
er því fegnastur að skipta sér sem allra minnst og helzt ekkert
af því, hvernig nemendur hans rækja námið eða hvernig þeim
sækist það. Það er líka hægt að hugsa sér svo hirðulausa
nemendur, að þeir láti reka á reiðanum, þrátt fyrir viðleitni
kennarans til þess að leiðbeina þeim og hvetja þá. En lang-
flestum kennurum og nemendum er sem betur fer annan veg
farið. Og ég ætla líka að heillavænlegast sé fyrir nemendur
og vandamenn þeirra að mega vænta þess, eiga jafnvel kröfu
á því, að kennararnir fylgist svo vel sem verða má með hverj-
um sínum nemanda og geri það sem unnt er til þess að þeir
geti náð sem beztum árangri á sem hæfilegustum tíma. Þetta
á ekkert síður við háskólanám en annað skólanám. Munur-
inn er aðeins sá, að í háskóla eru yfirleitt þroskaðri nem-
endur og betur færir um að gæta sín sjálfir og vita, hvar
þeir eru á vegi staddir hverju sinni. Ég nefni þetta hér, af
því það var í umræður fært í sambandi við háskólalögin,
jafnvel á þann veg, að háskólakennara skyldi vera óheimilt
að skipta sér hið minnsta af námshögum lærisveina sinna.
Hér sem jafnan eru öfgarnar verstar. Ég er þess fullviss, að
héðan af svo sem hingað til muni samskipti háskólakennara
og stúdenta mótast af velvild og trúnaði af beggja hálfu
og að fráleitt sé, að reisa þurfi með lögum þann múrvegg
milli þeirra, sem hvorugur fái yfirstigið, enda áreiðanlega
engum til góðs.
Með hinum nýju háskólalögum voru stofnuð þrjú ný pró-
fessorsembætti. Er hér fyrst að telja prófessorsembætti í eðlis-
fræði við verkfræðideild og prófessorsembætti í uppeldis- og
kennslufræðum við heimspekideild; ennfremur prófessors-
embætti í lyfjafræði við læknadeild, en jafnframt var nám
í lyfjafræði lyfsala lagt undir læknadeild, undir umsjá prófess-
orsins í lyfjafræði, með einn aukakennara, dósent. Við þetta