Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 97
95
fundi, með sama hætti og aðrir, er fundinn sækja. Deildarfundur
getur þó leyft honum að skýra stjórn deildarfélags síns eða deildar-
félögum sínum frá einstökum málum og afgreiðslu þeirra.
22. gr.
Deildarforseti hlutast til um, að samin sé í tæka tíð skrá um fyrir-
hugaða kennslu á kennslumisseri því, sem í hönd fer. Kennsluskrá
þessi skal prentuð í einu lagi fyrir allar deildir háskólans. í kennslu-
skrá skal og greina almennar upplýsingar um háskólann, stofnanir
hans og starfsemi, og enn fremur skal prenta þar þá þætti úr reglu-
gerð háskólans, sem varða nemendur sérstaklega.
23. gr.
Hver deild semur lestrar- og kennsluáætlun fyrir sig (upplýsinga-
rit um kennslu og nám). Skal fjölrita hana eða prenta og afhenda
nemendum, er þeir hef ja nám sitt.
í kennsluáætlun skal greina, hverjar námsgreinar séu kenndar í
deild, hvemig kennslugreinum sé skipt eftir kennslumisserum, hve
námstíminn sé áætlaður langur í heild eða í hverjum prófhluta um
sig, ef því er að skipta. Þá skal og greina námskeið og æfingar og
reglur um þau. Enn fremur skal lýsa þar kennsluháttum og próf-
háttum, þar skal geta kennslurita og annarra rita, sem æskilegt er
að stúdent kynni sér í námi sínu, og greina almennt frá náminu,
eftir því sem þörf þykir.
24. gr.
Hver háskóladeild ákveður, hvort eða að hve miklu leyti kennsla
skuli fara fram, meðan á prófum stendur.
IV. KAFLI
Kennsla og nemendur.
a. Kennsluár, misseraskipting og Tcennsluhlé.
25. gr.
Kennsluár háskólans skiptist í tvö kennslumisseri, haustmisseri
frá 15. sept. til 31. jan. og vormisseri frá 1. febrúar til 15. júní. Há-
skólaráð getur ákveðið aðra misseraskiptingu með samþykki mennta-
málaráðherra fyrir tilteknar greinar eða deildir.
26. gr.
Á háskólaárinu eru þessi leyfi: jólaleyfi frá 20. desember til 6. jan-