Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 91
89
c. Háskólaráö, skipan þess, starfssviö og starfshættir.
6. gr.
Rektor og forsetar háskóladeildanna skipa háskólaráð. Rektor er
sjálfkjörinn forseti ráðsins, en varaforseta og ritara kýs ráðið úr sín-
um hópi til eins árs í senn á fyrsta fundi sínum.
Deildarforseta er skylt að sækja fundi háskólaráðs. Nú má deildar-
forseti ekki sækja fund vegna forfalla eða hann er vanhæfur til að
taka þátt í úrlausn máls, og tekur þá sá kennari, sem kosinn hefur
verið deildarforseti til vara, sbr. 18. gr., sæti hans í ráðinu. Ef þess
manns nýtur ekki, kveður rektor til fundarsetu þann prófessor úr
deild þeirri, sem í hlut á, er lengst hefur gegnt kennaraembætti í
deildinni. Sömu reglur gilda, er deildarforseti gegnir rektorsstörfum
í viðlögum, sbr. 5. gr.
Deildarforseta er skylt að gera grein fyrir afstöðu deildar sinnar
í málum, sem koma fyrir háskólaráð og deildin hefur f jallað um, en
eigi er honum skylt að fara eftir samþykkt deildar, er hann neytir
atkvæðisréttar í háskólaráði.
7. gr.
Ávallt er háskólaráð ræðir mál, sem varða stúdenta háskólans al-
mennt, skulu stúdentar eiga einn fulltrúa á fundi háskólaráðs. Hefur
fulltrúinn þar málfrelsi og atkvæðisrétt.
Stúdentaráð nefnir til einn mann úr hópi háskólastúdenta og ann-
an til vara til setu á fundum háskólaráðs samkvæmt 1. málsgrein.
Tilnefning þessi fer fram í maímánuði ár hvert, en fulltrúinn tekur
sæti í háskólaráði með byrjun háskólaárs.
Fulltrúa stúdenta er skylt að gera grein fyrir afstöðu stúdenta-
ráðs í málum, sem það hefur fjallað um og koma fyrir háskólaráð,
en eigi er honum skylt að fara eftir samþykkt stúdentaráðs, er hann
neytir atkvæðisréttar síns í háskólaráði.
Háskólaráð sker úr því hverju sinni, hvort tiltekið mál, sem til
umræðu er í háskólaráði, sé þess konar, að fulltrúi háskólastúdenta
eigi að taka þátt í úrlausn þess.
Fulltrúi stúdenta er þagnarskyldur um það, sem gerist á fundum
háskólaráðs, með sama hætti og aðrir háskólaráðsmenn. Háskólaráð
getur þó leyft honum að skýra stúdentaráði frá einstökum málum
og afgreiðslu þeirra.
8. gr.
Háskólaráð heldur fundi eftir þörfum. Æski tveir menn úr háskóla-
ráði fundar, er rektor skylt að boða til fundar, svo og ef einn þriðji
12