Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 94
92
15. gr.
Forseti íslands skipar prófessora, menntamálaráðherra skipar dós-
enta að fengnum tillögum háskóladeildar, en háskólaráð ræður lekt-
ora, aukakennara og aðstoðarkennara samkvæmt tillögum háskóla-
deilda, eftir því sem fé er veitt til.
16. gr.
Nú verður prófessorsembætti laust, og skal þá auglýsa það til um-
sóknar hið fyrsta, og skal umsóknarfrestur venjulega vera 4 vikur.
Umsækjendur um prófessorsembætti skulu láta fylgja umsókn
sinni ítarlega skýrslu um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið, rit-
smíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með umsókn-
inni skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækj-
enda, prentuðum og óprentuðum.
Skipa skal hverju sinni þriggja manna nefnd til þess að dæma um
hæfni umsækjenda til að gegna embættinu. Háskólaráð skipar einn
nefndarmann, menntamálaráðherra annan, en deild sú, sem kennar-
inn á að starfa við, hinn þriðja, og er hann formaður nefndarinnar.
1 nefnd þessa má skipa þá eina, sem eru kunnáttumenn í þeirri grein,
sem umsækjendum er ætlað að kenna. Heimilt er að kveðja erlenda
menn til starfa í dómnefnd.
Dómnefnd skal hraða störfum sínum eftir föngum, og skal hún að
jafnaði hafa lokið störfum sínum innan tveggja mánaða frá því, er
hún var skipuð. Dómnefnd skal láta uppi rökstutt álit um það, hvort
af vísindagildi rita umsækjenda og rannsókna, svo og námsferli hans
og störfum megi ráða, að hann sé hæfur til að gegna embættinu.
Álitsgerð nefndarinnar skal höfð til hliðsjónar, er embættið er veitt,
og má engum manni veita prófessorsembætti við háskólann, nema
meiri hluti nefndarinnar hafi látið í ljós það álit, að hann sé hæfur
til þess. Enn fremur skal leita álits hlutaðeigandi háskóladeildar um
umsækjendur.
Framangreind ákvæði um veitingu prófessorsembættis skulu einn-
ig gilda um skipun dósenta og sérfræðinga við háskólastofnanir.
Víkja má þó frá þessu við einstaka starfsveitingu samkvæmt tillögu
háskóladeildar og með samþykki háskólaráðs.
17. gr.
Þegar sérstaklega stendur á, getur menntamálaráðbe.rra, sam-
kvæmt tillögu háskóladeildar og með samþykki háskóláríðs, boðið
vísindamanni að taka við kennaraembætti við háskólann, ár. pess að
það sé auglýst laust til umsóknar.
Menntamálaráðherra skal heimilt, samkvæmt tillögu háskóladeild-