Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 132
130
verði breytt, er prófessorsembætti verður laust í deild hans, og get-
ur menntamálaráðherra þá heimilað breytinguna, ef deild sú, sem
í hlut á, fellst á tilmæli prófessorsins.
85. gr.
Prófessorarnir í lyflæknisfræði og handlæknisfræði veita forstjórn
lyflæknis- og handlæknisdeildum Landspítalans, og prófessorinn í
meinafræði veitir jafnframt forstöðu rannsóknarstofu í meinafræði.
Prófessorinn í heilbrigðisfræði skal auk kennslunnar í þeirri grein
annast heilbrigðislegar rannsóknir fyrir heilbrigðisstjórnina, þar á
meðal manneldisrannsóknir í samráði við manneldisráð. Prófessor-
inn í lyfjafræði hefur umsjón með kennslu í lyfjafræði lyfsala. Kenn-
arinn í lyfjafræði lyfsala hefur jafnframt á hendi eftirlit með lyfja-
búðum fyrir heilbrigðisstjómina.
Prófessorinn í eðlisfræði er jafnframt forstöðumaður rannsóknar-
stofu til mælinga á geislavirkum efnum. Rannsóknarstofa þessi lýt-
ur verkfræðideild.
Prófessorinn í uppeldisfræðum skal skipuleggja kennsluæfingar
nemenda í uppeldisfræðum. Hann skal halda fyrirlestra fyrir starf-
andi kennara og efna til námskeiða fyrir þá. Auk þess skal hann
annast rannsóknir og leiðbeiningastörf í þágu uppeldismála landsins,
eftir því sem nánar verður ákveðið.
Prófessorinn í forspjallsvísindum hefur á hendi kennslu í upp-
eldisfræðum, eftir því sem samrýmist störfum hans.
86. gr.
Menntamálaráðherra ákveður tölu dósenta, lektora, aukakennara
og aðstoðarkennara í einstökum deildum og greinum, að fengnum
tillögum háskólaráðs.
X. KAFLI
Um rannsóknarstöðvar.
87. gr.
Heimilt er að setja á stofn rannsóknarstöðvar við einstakar deild-
ir háskólans samkvæmt tillögum deildar og með samþykki háskóla-
ráðs, eftir því sem fé verður veitt til þess, og skal hverju sinni
kveða á um það, hversu fari um forstjórn rannsóknarstöðvar og
tilhögun.