Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 99
97
háskólaborgari, gegn því að greiða skrásetningargjald, enda hafi
stúdent ekki gerzt sekur um neina þá óhæfu, sem geri það varhuga-
vert, að dómi háskólaráðs, að veita honum skólavist.
Háskólaráð getur leyft, að skrásettir verði til náms menn, sem
lokið hafa erlendis prófi eða prófum, er tryggja nægan undirbúning
til námsins eigi miður en íslenzkt stúdentspróf.
30. gr.
Um inntöku nemenda í verkfræðideild gilda sérákvæði, sbr. 56. gr. a,
svo og til náms í lyf jafræði lyfsala, sbr. 46. gr. a, og enn til náms í
stærðfræðilegum greinum B.A.-prófs, sbr. 54. gr. 3. málsgr.
31. gr.
Heimilt er að synja stúdent um skólavist vegna persónulegra á-
galla, eiturlyfjaneyzlu eða annarrar alvarlegrar óreglu.
2. Skrásetning stúdenta.
32. gr.
Skráning nýrra stúdenta til náms fer fram ár hvert frá 1. sept. eða
næsta virkum degi til 1. okt. og frá 10. jan. eða næsta virkum degi
til 1. febrúar. Háskólaráði er þó heimilt að ákveða, að frestir séu
skemmri um skráningu í þær deildir, þar sem aðgangur er takmark-
aður, svo og að leyfa einstökum stúdentum skrásetningu á öðrum
tíma en greinir hér að framan, ef sérstaklega stendur á. Beiðni um
skrásetningu skal fylgja stúdentsprófsskírteini og önnur þau skil-
ríki, sem nauðsynleg eru samkvæmt ákvæðum reglugerðar háskólans,
svo og skrásetningargjald.
Skrásetningargjald er 300 krónur. Renna % hlutar þess í próf-
gjaldasjóð, en y3 hluti þess rennur í sjóð, sem nefnist stúdentaskipta-
sjóður. Skal fé hans vera í vörzlum háskólaráðs, en stúdentctráð tek-
ur ákvarðanir um veitingu fjár úr sjóðnum. Fé sjóðsins má aðeins
verja til þess að stuðla að stúdentaskiptum milli íslands og annarra
rikja eftir því, sem nánar verður ákveðið í skipulagsskrá sjóðsins,
sem háskólaráð og stúdentaráð setja, en staðfesta skal með venju-
legum hætti.
Háskólaráði er heimilt að áskilja samkvæmt tillögu háskóladeildar,
að nemendur greiði gjöld vegna þátttöku í námskeiði til þess að
standa straum af sérstökum kostnaði, svo sem vegna efniskaupa.
Skrásettur stúdent fær í hendur háskólaborgarabréf, sem rektor
undirritar.
13