Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 140
138
í skáksveit stúdenta voru þessir menn: Friðrik Ólafsson, Ingvar
Ásmundsson, Freysteinn Þorbergsson, Stefán Briem, Árni Grétar
Finnsson og Bragi Þorbergsson. Ekki skal hér rætt um árangur
skáksveitarinnar, enda hefur hans rækilega verið getið í blöðum og
útvarpi.
Bókmenntakynningar.
Bókmenntakynningar voru þrjár haldnar á vetrinum sem leið.
Fyrsta kynningin var á verkum Jónasar Hallgrímssonar og var hún
undirbúin af fyrri bókmenntakynningarnefnd. Prófessor dr. Einar Ól.
Sveinsson flutti þar erindi um skáldið, en leikarar lásu úr verkum
þess. Aðrar kynningar voru undirbúnar af þeirri bókmenntakynn-
ingarnefnd, sem fráfarandi stúdentaráð skipaði. í henni voru: Knútur
Bruun, formaður, Ólafur B. Thors og Páll Lýðsson.
Fyrsta kynningin, sem þeir undirbjuggu, var kynning á verkum
ungra Ijóð- og tónskálda, sem vakti mjög mikla athygli, enda farið
þar inn á nýjar brautir um kynningar þessar. Kynnt voru verk eftir-
talinna Ijóðskálda: Einars Braga, Stefáns Harðar Grímssonar, Jó-
hanns Hjálmarssonar, Hannesar Péturssonar, Mattíasar Jóhannessen,
Jónasar Svafár, Gunnars Dal, Þorsteins Valdimarssonar, Sigfúsar
Daðasonar, Jóns Óskars og Hannesar Sigfússonar. Sum skáldanna
lásu sjálf upp kvæði sín, en kvæði annarra lásu ungir leikarar eða
stúdentar. Gísli Magnússon lék tónverk eftir Magnús Bl. Jóhannsson
og Leif Þórarinsson, Sigurður A. Magnússon, bókmenntagagnrýnandi
flutti erindi um strauma og stefnur í nútímaljóðlist auk þess, sem
hann fór nokkrum orðum um skáld þau, er kynnt voru á þessari
kynningu.
Þriðja kynningin á vetrinum var á verkum Magnúsar Ásgeirssonar.
Þar flutti síra Sigurður Einarsson frá Holti erindi um skáldið, en
leikarar lásu úr verkum hans. Auk þess söng Guðmunda Elíasdóttir
lög við ljóð eða þýðingar eftir Magnús. Öllum kynningum þessum
var útvarpað síðar af segulbandi.
Mikið var gert til þess að koma upp fleiri kynningum, en allar til-
raunir í þá átt brugðust sökum skorts á mönnum, er gætu eða vildu
flytja erindi. Drógust nokkrir á að gera slíkt, en brugðust allir um
síðir. Auk þess tíðkast það nú meir en áður, að útgáfufyrirtæki haldi
slíkar kynningar og því erfiðara um vik fyrir stúdentaráð að keppa
við fjársterk útgáfufyrirtæki.
Handbók stúdenta.
Eins og getið var um í síðasta Vettvangi Stúdentaráðs, var s. 1.
vetur samþykkt tillaga frá meirihluta ráðsins um að gefa út Hand-