Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1958, Blaðsíða 12
10
prófessorsembættis í eðlisfræði skapast nauðsyn á því að koma
upp fullkomnu húsnæði fyrir kennslu í eðlisfræði. Háskólaráð
vill bæta úr þessum vanda með því að láta byggja nýja hæð
ofan á suðurálmu íþróttahússins og hefir látið gera nauð-
synlega uppdrætti að þeirri framkvæmd. En hér stendur á
fjárfestingarleyfi og liggur þó þessi álma íþróttahússins undir
skemmdum af þakleka, sem úr skyldi bætt með hinni nýju
hæð. Nú er vandséð, úr því að þessi framkvæmd dregst, hvort
komizt verði hjá allkostnaðarsamri bráðabirgðaviðgerð á þaki
álmunnar, en því fé er á glæ kastað. Ég efa ekki, að fjárfest-
ingarmálin eru örðug viðfangs. En það ætti að vera lýðum
ljóst, að til stórvandræða leiðir og ómetanlegs tjóns fyrir rikið,
ef þeirri stefnu verður öllu lengur fram haldið, að sporna
sem fastast gegn nýbyggingum í þágu hins opinbera, en láta
á sama tíma afskiptalaust, þótt á hverju ári sem líður sé
sett nýtt met í byggingarframkvæmdum öðrum, eins og nú
á sér stað.
Háskóli vor er vaxandi stofnun. Hér bætast við nýjar starfs-
greinar og hinar fyrri færa út kvíarnar. Þessi þróun er eðli-
leg í þjóðfélagi, sem sjálft er i örum vexti og á þeirri öld sem
gerir æ meiri og fjölþættari kröfur um menntun og sérhæfða
þekkingu. Ég hefi áður rætt nokkuð um þetta og þar með um
hættuna á því, að vér drögumst aftur úr, ef ekki sé því betur
til gætt. Ég skal víkja að þessu síðar. En úr því ég minntist
á húsnæðismál, kemst ég ekki hjá því að skýra frá því, hversu
ástatt er um þessi efni, húsrýmið í sjálfri háskólabyggingunni.
Nú er verið að breyta húsnæði því, sem Húsmæðrakennara-
skólinn hafði áður, í kennslu- og vinnustofur vegna lífeðlis-
fræðinnar og lyfjafræði lyfsala. Þegar því er lokið má segja,
að engin smuga sé lengur til ónotuð í háskólabyggingunni.
Þá er þar svo ástatt, að tannlæknaskólinn býr og hefir búið
við svo lítinn húsakost, að hann hefir orðið að takmarka nem-
endatöluna af þeim sökum miklu meira en annars hefði þurft.
Er nú i athugun, hvort unnt sé að búa honum bráðabirgða-
húsnæði í nýju landspítalabyggingunni, því að í sjálfum há-
skólanum er enginn kostur á auknu húsrými. Ég hefi áður