Hugur - 01.01.1994, Side 15

Hugur - 01.01.1994, Side 15
HUGUR Aðferðafrœði í anda Rawls 13 í þessari ritgerð leitast ég við að varpa ljósi á meginatriði þessa „verklags". Ég mun ekki reyna að meta að hve miklu leyti skrif Rawls sjálfs hafi valdið uppgangi þessarar aðferðafræði; ekki frekar en ég mun eyða miklu púðri í að sýna fram á að þessi aðferðafræði njóti í raun rnikils fylgis meðal enskumælandi stjórn- málaheimspekinga. í hinum enskumælandi heimi hlaupast margir undan merkjum þessarar aðferðafræði og má þar greina tvo mjög ólíka flokka heimspekinga: Annars vegar er stór minnihlutahópur heimspekinga sent vinna fremur í anda sögulegrar meginlandshefðar og má þar nefna Charles Taylor og Alasdair Maclntyre; hins vegar eru þeir sem nota aðferðir leikjafræði, félagslíffræði og vitundar- fræði til að grundvalla hugmyndir sínar um siðferði og stjórnmál á mannlegu eðli og skynsamlegum eiginhagsmunum.2 3 Þrátt fyrir þetta trúi ég að þeir höfundar sem mest kveður að í stjórnmála- heimspeki samtímans vinni í anda þessarar aðferðafræði — og þessa fullyrðingu mína mætti að sjálfsögðu prófa með athugun á því efni sem birst hefur í virtari bókum og tímarilum hin síðari ár.^ Markmið mitt með þessari ritgerð er einfaldlega að reyna að skýra meginforsendur og reglur þessa verklags og rissa þannig upp mynd af aðferðafræði í anda Rawls sem margir okkar geti fundið sig í. En því skyldi maður ekki bara kæra sig kollóttan um þessa aðferðafræði? Að hluta til vegna þess hversu útbreidd hún er og vegna þess að sem „verklag“ þá felur hún í sér þær forsendur stjórnmálakenninga okkar og hugmynda sem við veltum sjaldnast fyrir okkur. Þar á meðal eru fyrirfram gefnar hugmyndir, til dærnis um hvers konar spurningar það séu sem okkur virðist gagnlegt að spyrja, hvað gæti talist svar við þessum spurningum, hvers konar sönnunargögn eða rök gætu stutt slík svör, hvaða andstæðinga okkur ber að taka alvarlega, hvaða viðfangsefni á tengdum sviðunt má ganga út frá að búið sé að leiða til lykta? Af þessu leiðir að ekki er hægt að greina skýrt í sundur aðferðafræði í þessum víða skilningi og inntak forskriftarkenninga okkar, a.m.k. 2 Sjá yfirgripsmikla úttckt á þessari aðferðafræði eftir P. Railton o.fi., „Towar- ds Fin de siécle Ethics: Some Trends", Philosophical Review, 101 no. 1 (1992). 3 Benda má á tímarit eins og Ethics, Philosophy & Pubiic Affairs, Social Philosophy & Policy og Political Studies þar sem þessi aðferðafræði er áberandi, en jafnframt á t.d. Political Theory þar sem meira ber á meginlandsheimspeki.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.