Hugur - 01.01.1994, Blaðsíða 106

Hugur - 01.01.1994, Blaðsíða 106
104 Mikael M. Karlsson HUGUR það er að segja auðveldlega buguð af fyrirstöðu truflandi orsaka — þá getur vel farið svo að náttúrleg afleiðing hennar sé ekki tölfræðilega trúlegasta afleiðingin. Jafnvel Hume fcllst á að líkindaþáttinn í orsakaralhæfingum („oftast nær“) beri að greina með tilvísun til fyrirstöðu truflandi orsaka, þó svo að það stangist á við þá skoðun hans að orsakar- alhæfingar séu lfkindadómar, ef ég hef á réttu að standa. Hann segir: ,,[Þ]egar einhver orsök hefur ekki hina venjulegu afleiðingu, þá kenna heimspekingar ekki neinni óreglu í náttúrunni um, heldur ganga þeir að þvf vísu að einhverjar huldar orsakir, í byggingu heildarinnar úr hlutum sínum, hafi komið í veg fyrir framgang afleiðingarinnar."20 Það má verja líkindagreininguna á almennum sannindum eins og „ópíum svæfir" lengi og vel. Samt virðist mér sannfæringarmáltur greiningarinnar með tilvísun til truflandi orsaka vera meiri. Og þessi greining blæs nýju lífi í kostinn á því að bera saman alhæfar forskriftir annars vegar og hins vegar alhæfingar eins og „kjúklingar hafa heiminn — þar sem gæfumunarlögmálið er ekki algilt. En hún telur þetta lögmál sprottið af þeirri hugmynd að orsakasambandið sé nauðsynlegt samband. Anscombe gefur ágæta lýsingu á ferli gæfumunarlögmálsins í eðlisfræði og heim- speki. Nancy Cartwright hefur líka Iátið í Ijósi efasemdir um gæfumunarlögmálið, en að mér virðist með dálítið öðrum rökum en Anscombe. Hún segir um „alhæfingarsinna" (covering-law theorists) að „þeim hætti til að halda að náttúran sé reglubundin, og þegar lengst er gengið að til sé lögmál sem nái yfir alla hluti. Þetta held ég ekki... Það sem gerist við flestar aðstæður hlítir ekki ncinu lögmáli... Kannski samdi Guð aðeins fáein lögmál og þrcyttist svo. Við vitum ekki hvort við búum við röð og reglu í heiminum eða ekki. En hvernig sem heimurinn okkar er, þú ... ætti að vera vit í því að gefa orsakaskýringar á því sem fram fer.“ (Cartwright, How llie Laws of Physics Lie, s. 49.) Cartwright tekur „hversdagslegt dæmi“. „I fyrra gróðursetti ég kamelíur í garðinum mínum. Ég veit að kamelíur kjósa gjöfulan jarðveg svo að ég gróðursetti þær með húsdýraáburði. En áburðurinn var enn í heitara lagi, og ég veit líka að kameliurætur þola ekki mikinn hita... Þegar margar af kamelíunum visnuðu upp, þrátt fyrir óðaftnnanlega umönnun, vissi ég hvað að var ... Ég gróðursetti þær í heitum jarðvegi ... [En það] er ekkert lögmál til sem segir að kamelíur eins og mínar, gróðursettar í gjöfulum og heitum jarðvegi, deyi og aðrar dafni. Ég vil ekki neita því að það kunni að vera til slíkt alhæft lögmál. [En] ... kostir okkar á því að gefa slfka hversdagslega skýringu eru upprunalegri en vitneskjan um þetta lögmúl." (Sama ril, s. 51-52.) Þó að ég fylgi ekki Anscombe og Cartwright að öllu leyti, þá deili ég með þeim hinu almenna viðhorfi þeirra til orsakasambandsins. Um þessi efni fjalla ég í öðrum ritgerðum. 20 Enquiry Concernin); Human Underslanding, §47, s. 58 (sbr. íslenska útgáfu, s. 128).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.