Hugur - 01.01.1994, Blaðsíða 91

Hugur - 01.01.1994, Blaðsíða 91
HUGUR Að gera eða að vera 89 Eftirmáli 1994 Eg hafði steingleymt þessum lestri frá 1977 þegar Ágúst Hjörtur Ingþórsson gróf hann upp úr skjalasafni Félags áhugamanna um heimspeki. Ég varð hissa á mörgu þegar ég las hann. Mest varð ég hissa á því sem þar stendur undir lokin um breyskleika. Ég hafði talið mér trú um að ég hel'ði fyrst hugsað um breyskleika af alvöru í Berkeley árið 1982 í félagsskap við Donald Davidson. En ég gat ekkert séð á móti því að lesturinn væri birtur, sem lítil heimild um liðna tíð, með hæfilegum viðvörunum. Helzta viðvörunin er sú að hann var saminn til flutnings en ekki til birtingar, og þar á ofan til flutnings á samkomu þar sem langar umræður yrðu á eftir og mörg tækifæri gæfust til að bæta málflutninginn ekki síður en til að kyngja eða svara andmælum. Þetta bið ég góðfúsan lesara að hafa í huga. Ég hef ekki breytt öðru en smávægilegu villandi orðalagi á stöku stað. Helzti málstaður minn í þessum lestri átti sér ekkert nafn svo ég vissi árið 1977. Nú á hann sér nafn meðal siðfræðinga og heitir dygðafræði (virtue ethics, virtue theory). Helztu frumkvöðlar dygða- fræðinnar á okkar tímum eru þær G.E.M. Anscombe og Philippa Foot, en Alasdair Maclntyre mun hafa stuðlað mest að útbreiðslu hennar í veröldinni með bók sinni After Virtue. Hefði nafnið "dygðafræði" verið komið til sögunnar hefði eflaust farið miklu meira fyrir hugmyndunum um dygðir og lesti en raun er á í lestrinum. En þessar hugmyndir má meðal annars nota, að ég held, til að bregða ljósi á viljahugtakið með ýmsu móti. Andóf mitt við bæði nytjastefnu og siðfræði Kants, við markhyggju og siðfræðilegri tvíhyggju, er allt í anda dygðafræðinnar. Sum and- mælin virðast mér góð og gild enn í dag, til dæmis þau sem ég hef eltir Bernard Williams um varnarleiki, en öðrum finnst mér ábótavant. Til dæmis eru ýmis göt í hugleiðingu minni um markmið, ánægju og vinnu. Þó er ég viss um að meginniðurstaðan — sú að greinarmunur tækis og tilgangs eigi ekki við um margar mikilsverðar athafnir — er bæði rétt og mikilvæg. í „Að gera og að vera“ er það einkum eitt sem er frá mér sjálfum komið, og það er tilraun mín til að ná einhverjum tökum á hugmynd- inni um vilja. Um þetta efni hugsaði ég mikið um skeið, hélt um það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.