Hugur - 01.01.1994, Side 70

Hugur - 01.01.1994, Side 70
68 Þorsteinn Gylfason HUGUR mannfélagsmálefni en efnahagsmál og stjórnmál.5 í stjórnmálum voru háðir, þegar öllu er á botninn hvolft, einhvers konar stjórnleysingjar; og mér leyfist kannski að kannast við að þar er sannfæring sem ég hef afskaplega ríka samúð með. Um ágreining þeirra um efnahagsmál er það eitt að segja að hann skiptir okkur engu. ÖIl hagfræði beggja er öldungis úrelt, svo sem vonlegt er vegna breyttra aðstæðna eftir meira en heila öld linnulausra og stórfelldra umbyltinga: það er vanþekking ein sem veldur því að sumir telja þessa hagfræði eiga eitthvert erindi við samtímann. Svolítið öðru máli gegnir um stjórnmálaskoðanir þeirra félaga: ágreiningur félagshyggjumanna og frjálshyggjumanna um þau efni er sómasamlega raunhæfur enn í dag, enda er lítið sem ekkert um hann hugsað. Þar vill hins vegar svo til, eins og fram er komið, að Marx er á sama báti og Mill, og mundi ef hann lifði hella úr skálum reiði sinnar yfir lélagshyggjumenn samtímans. Þessir félagshyggjumenn samtímans eru stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa og hvort sem þeir leggja stund á landsmál eða nefndastörf í háskóla og vilja kaupa stóra tölvu. Stjórnmálamenn eru, eins og sænski hagfræðingurinn Assar Lindbeck segir í einni bóka sinna,6 auglýsendur fyrir samneyzlu; alveg eins og listamenn, segir hann, eru frá efnahagssjónarmiði auglýsendur fyrir menningu. Og hér má enginn láta það rugla sig í ríminu að auðvitað látast þessir menn vera ósammála um flesta hluli, líka um félagshyggju og frjálshyggju. En á dögunum sá ég það haft eftir Ásgeiri Bjarnasyni í Ásgarði að eiginlega væri enginn ágreiningur milli íslenzkra stjórnmálaflokka. Mér þykir Ásgeir bóndi nokkuð trúverðugur um þetta efni: hann kemst jú ekki hjá því að heyra sitt af hverju af stóli sínum á Alþingi. Og ef einhverjum þykir þetta reyfaraleg kenning hjá okkur Ásgeiri, þá bið ég hann um að velta því fyrir sér til dæmis hvort hann hefur nokkurn tfma haft spurnir af presti sem er þó ekki sé nema hótinu kristi legri í daglegri breytni sinni en til að mynda andkristinn trú- leysingi eins og ég. Eitt er að stíga í stólinn eða skrifa forustugrein. Annað að vera til. 5 Sbr. t.d. Karl R. Popper, The Open Society and Its Enemies (New York, 1963), II, s. 81-88. 6 Assar Lindbeck, Den nya vansterns politiska ekonomi (Stokkhólmi, 1971).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.