Hugur - 01.01.1994, Side 83

Hugur - 01.01.1994, Side 83
HUGUR Að gera eða að vera 81 VIII Hvað er vald? Vilji krefst valds. En hvað er þá vald? Sagt er að Árni Pálsson prófessor hafi einu sinni sem oftar haldið ræðu á almennum fundi og einn fundarmanna kallað fram í fyrir honum og rengt eitthvert atriði í ræðunnar eins og gengur. Sá var Sigurður Eggerz. En Árni sat við sinn keip svo að enn æpti Sigurður: „Ég ætti að vita það; ég var ráðherra þá.“ „Satt er það,“ svaraði Árni. „Þitt var ríkið. En hvorki mátturinn né dýrðin." Við skulum nú láta dýrðina liggja milli hluta. En greinarmunur ríkisins og máttarins er gamalkunnugt frumatriði stjórnspeki og stjórnfræði. Að vísu þætti hverjum sómakærum stjórn- fræðingi orðalag faðirvorsins fjarri því að vera nógu fræðilegt, og þess vegna þori ég ekki annað en að komast öðruvísi að orði en frelsarinn og tala um réttarvald og máttarvald, og bið forláts ef þessi fræðiorð mín lála ekki nógu ankannalega í eyrum. I samræmi við siðfræðilega tvíhyggju lítur hin nútímalegasta stjórnfræði svo á að réttarvaldið sé siðferðilegt fyrirbæri; hins vegar beri henni henni að fjalla ítarlega um máttarvaldið sem sé af þessum heimi en ekki öðrum. Og vildi ég nú mega hyggja um stunda að máttarvaldskenningu eins kunnasta stjórn- fræðings samtímans, Roberts A. Dahl.2^ Máttarvald kallar Dahl ýmist „power“ eða „influence“ og fjallar um það í smáatriðum. Hann skilgreinir hugtakið svo að máttarvald einstaklings A yfir öðrum einstaklingi B sé í því fólgið að A valdi breytingu á háttum B, hvort heldur athöfnum hans eða skoðunum og tilfiningum. Milli viðleitni A og viðbragða B segir hann að sé orsaka- samband, sambærilegt við orsakasamband í vélgengu kerfi. Til frekari skýringar ber hann saman máttarvaldshugtak silt og kraftshugtak sígildrar eðlisfræði. í ljósi tregðulögmálsins má ráða af sérhverri hraðabreytingu að kraftur sé að verki, og þeim mun meiri eða minni kraftur sem breytingin er meiri eða minni. Eins má ráða máttarvald manns yflr öðrum mönnum af breytingum á háttum þeirra, og þvf meira eða minna sem þeir víkja frá upphaflegri ætlun sinni, þeim mun meira eða minna er vald hans.24 Máttarvaldshugtakið er því reyndar- 23 R.A. Dahl, Modern Polilical Analysis, (Englewood Cliffs, 1970). 24 Sama rit, s. 17-20.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.