Hugur - 01.01.1994, Blaðsíða 102
100
Mikael M. Karlsson
HUGUR
kjúklingur óvængjaður úr egginu. I slíkum dæmum virðist eðlilegra að
tala um undantekningar frá reglu en um takmarkanir á umfangi. En
þetta eru ekki undantekningar sem afsanna eða ógilda regluna.
Alhæfingar um orsakir leyfa lfka undantekningar. Hume skrifar:
Sumar orsakir hafa ævinlega sömu aficiðingar ... eldur hefur alltaf
brennt, og vatn hefur alltaf kæft sérhvert mannsbarn, hreyfing er
afieiðing höggs og þunga samkvæmt algildu lögmáli sem hefur hingað
til ekki liðið eina einustu undantekningu. En það cru aðrar orsakir sem
hafa reynzt vera óreglulegri og óvissari. Tröllasúra hefur ekki hreinsað
meltingarfæri allra, né heldur hefur ópíum svæft alla, sem hafa neytt
þessara meðala. ^
Og löngu fyrir daga Humes aðgreindi Aristóteles þrjár tegundir
orsaka: þær sem valda afleiðingu sinni ævinlega og nauðsynlega, þær
sem valda afleiðingunni oftast nær (epi to polu) og þær sem valda
afleiðingu fyrir tilviljun.15 Samkvæmt Aristótelesi valda náttúrlegar
orsakir (til aðgreiningar frá himneskum) afleiðingum sínum oftast nær
fremur en ævinlega. Náttúrlegt orsakasamband, og þar með þau
almennu sannindi sem lýsa slíku sambandi, er þá ekki undan-
tekningarlaust. En þessi staðreynd er engin afsönnun alhæfinga eins
og þeirra að tröllasúra hreinsar, að kaffi örvar, að jarðefni leitar að
miðju alheimsins. Hér er alveg sömu sögu að segja og af undan-
tekningunum frá alhæfingunni að kjúklingar hafa vængi. Undan-
tekningarnar afsanna ekki reglurnar sem eiga við þær. Þar með getum
við ekki litið svo á að þær leiði stranglega af þessum reglum eða
alhæfingum.
Þessu kynni einhver að vilja svara svo að hin almennu sannindi
sem um er að ræða — til dæmis „kjúklingar hafa vængi“ eða
„tröllasúra hreinsar“ — séu aðeins tölfræðileg sannindi, eða það sem
Hume kallaði einfaldlega líkindi. Þær beri að skilja svo að flestir
kjúklingar hafi vængi, og tröllasúra létti hægðir oftast nœr, og
14 Enquiry Concerning Humun Understanding §47 í Enquiries Concerning Human
Understanding and Cancerning the Principles of Morals, 3ðja útgáfa, útgefin af
L.A. Selby-Bigge og útgáfan endurskoðuð af P.H. Niddich (Oxford: Clarendon
Press, 1975), s. 57-58. Allar tilvísanir mínar í Hume eru í þessa útgáfu. íslenzk
þýðing á bók Humes eftir Atla Harðarson heitir Rannsókn ú skilningsgáfunni
(Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1988), sjás. 128.
15 Sjá t.d. Physica II, 4: 1961310-16 og Metaphysica VI, 2: 10261,26-32; sjá einnig
Analylica Posteriora I, 30: 871519-26 og Analytica Posteriora II, 12: 96a8-17.