Hlín - 01.01.1931, Blaðsíða 72
70
Hlln
Barnaleikföng eru flutt inn fyrir 7614 þús. kr., ólík-
legt er að við gætum ekki sparað okkur eitthvað af
þeirri upphæð.
Körfur borgum við með 10.000 kr. á ári, eflaust
mætti margt af þeim gera í landinu. ,
Af matvælum úr fiski og kjöti (þar í pilsur og feiti),
niðursuðuvörur, mjólkurafurðir (þar í ostur) og egg
er flutt inn fyrir alt að því miljón kr. Vonandi minkar
þessi innflutningur eða hverfur með öllu, er Samlags-
mjólkurbúin, Sláturfjelag Suðurlands og Mjólkurfje-
lag Reykjavíkur framleiða í stórum stíl einmitt þessar
vörutegundir. Mjer er þó sagt, að æði mikið af þessum
innlendu vörum liggi nú óseldar, þó þær sjeu að engu
dýrari nje lakari en þær aðfengnu.
Af garðávöxtum er flutt inn fyrir alt að miljón kr.,
þaraf kartöflur, 20.000 tunnur, fyrir hálfa miljón kr.
Kálhöfuð, sem við getum hæglega framleitt í landinu,
eru flutt inn fyrir 20.000 kr. Þurkuð bláber fyrir
10.000 kr., það er vara, sem við ættum að geta lagt
okkur til sjálf.
Fjallagrös eru ekki nefnd í skýrslunum, en það er
kunnugt að þau eru flutt inn frá Noregi. útsöluverð í
annað að gera, fjelögunum að kostnaðarlausu. Jeg fjekk
leyfi til að flytja málið á fundum í báðum fjelögunum, en
þau sáu sjer ekki fært að sinna þessu boði. — Jeg skrifaði
bæjarstjórn Reykjavíkur um sama leyti sama efnis, en þar
var lfka steinhljóð. — Nokkru síðar sótti jeg um 600 krónu
styrk til handavinnunámsskeiðs, er jeg gekst fyrir í Rvík.
Lærðu unglingsstúlkur þar að sauma fötin utan á sig og
sína. En ekki þóttist bæjarstjórn geta veitt þennan styrk,
vísaði til Barnaskólans, að börnin lærðu handavinnu þarl
Hingað til hef jeg orðið lítið vör við skilning af hálfu
hinna leiðandi manna um þessi mál, þeir telja þetta smámál,
en þau verða stór, er saman koma hundruð þúsunda og
miljónir.