Morgunn - 01.12.1923, Page 23
M 0 R G IJ N N
149
miðil, Franek Klnski, og rannsóknirnar á hæfileikum hans,
en síðan skal minzt stuttlega á árangurinn af rannsóknum
dr. Geley’s.
Franek Kluski frá Varsjá er hátt á fimtugsaldri,
meðalmaður á hæð!, í magrara lagi, yfirleitt heilsugóður;
hann er mjög lirifnæmur bæði andlega og líkamlega, mjög
aðlaðandi í viðkynningu, gáfaður vel, mentaður og mál-
fróður. Hann hefir lagt fyrir sig skáldskap og önnur rit-
störf; af virðingu og ást á vísindunum léði hann sínar dá-
samlegu gáfur til rannsóknar, fyrst ágætum vísindamönnum
í ættlandi sínu en síðan sálarrannsóknastofnuninni í Par-
ís. Segir dr. Geley, að1 hann hafi þá (1921) ekki verið bá-
inn að iðka miðilsstörf reglulega nema í hjer um bil 18
mánuði. Gáfan virðist vera ættgeng; faðir lians var svona
Jíka, þótt hann héldi aldrei miðils'fundi, en dularfull fyr-
irbrigði gerðust jafnan sjálfkrafa í kringum hann, og Fran-
ek eru slík einkennileg atvik í barnsminni. Frændi hana í
föðurætt, katóiskur prestur, hafði einnig miðilsgáfu og var
skygn. í bernsku heyrði Franek því margar undursamlegar
frásagnir um dularfull fyrirbrigði meðal ættingja sinna,
og þær höfðu því fremur áhrif á liann. sem hann var mjög
'heilsuliraustur. Systkini 'hans dóu öll ung, og sjálfur fékk
hann í æsku bæði mislinga, skarlatssótt, bólusótt, taugaveiki
og lungnabólgu. Ilann var í bernsku draumhneigður og
hugsi, lék sér lítt með jafnöldrum sínum en fór einförum;
hann var fjarskygn (sá atvik, sem gerðust langt í burtu),
hafði hughoð um margt fyrir fram, og loks sá hann svipi,
sem honuir. virtust alveg eins og jarðncskt fólk. Um fimm
eða sex ára aldur voru þessar sýnir sérstaklega tíðar og
greinilegat. Barninu fanst þetta eðlilegt, var aldrei hrætt
við svipina, heldur hjalaði rólega við þá og þótti jafnnn
vænt um komu þeirra.
Það er fróðlegt að heyra, hvernig Franek lýsir sinni
fyrstu miðilsreynslu, og fer hér á eftir útdráttur úr frá-
sögn sjálfs hans.
A daginn var drengurinn oft eins og ntan við sig,