Morgunn - 01.12.1923, Blaðsíða 28
154
MOR&UNN
þessari, sem er á stöðugu iði, má greina, a. m. k. oft og
einatt, bjartari bletti, og á þeim stöðum er eins, og þokan
þjappist saman eða þéttist, og úr verða ekki ólögulegir
hnoðrar, heldur oftast nær algerlega rétt lagaðir manns-
fingur, hendur, handleggir og j afnvel höfuð. Þessir líkams-
hlutar eru annaðhvort sjálfbjartir, eða þeir eru með eðli-
legum lit. Þeir hreyfast hægt til og frá í herberginu og
koma oft svo nálægt fundarmönnum, að' unt er að koma
við þá og fullvissa sig um raunverulega tilvist þeirra og
festu. Yið snertingu eru þeir því nær altaf eins ákomu og
venjulegir líkamshlutar manna með hæfilegan blóðhita. En
eru þetta nú efeki t. d. hendur miðilsins eða einhvers af
fundarmönnum, eða þá tilbúnar hendur, sem laumað hefir
verið inn á fundinn í sviksamlegum tilgangi? Nei, það er
línt að sanna, að svo er ekki, heldur hafa limir þessir mynd-
azt við líkamningu á fundinum sjálfum og aflíkamazt þar
aftur. 0g sönnunin er þetta, að dr. Geley hefir heppnazt
að fá parafínafsteypu eða mót af höndunum með aðferð,
sem sálarrannsóknamenn hafa að vísu reyut áður, en hefir
náð fullkomnu og auknu sönnunargildi hjá dr. Geley. Að-
ferðin er á þessa leið:
Tveir menn halda hvor um sína hönd miðilsins. Rautt
ljós er -motað, svo að greina má þá, sem viðstaddir eru. f
stóra fötu eða ílát er látið vatn, sem haldið er heitu með
rafmagni, en þar á ofan er helt bráðnu parafíni. Tlátið
stendur á borði, um 60 sm. frá miðlinum. Höndin, sem lík-
amast, dýfir sér nú ofan í párafínið, oftar en einu sinni,
ef þörf er á. Þegar höndin er dregin upp úr, storlcnar para-
fínið þegar í ioftinu, og myndast þá þar með steypumót um-
hverfis hana. Síðan aflíkamast hönidin og lœtur parafín-
hanzkann eftir bjá J'undarmönnum. Síðan má hella gipsi í
hanzkann og dýfa síðan öllu saman í heitt vatn; bráðnar
þá parafínið utani af, en eftir verður nákvæm afsteypa úr
gipsi af hendinni.
Dr. Geley fékk ekki aðeins afsteypur af liöndum, held-
ur einnig- af fótum og nokkrum hluta af andliti. Afsteyp-