Morgunn - 01.12.1923, Blaðsíða 58
184
MOEGUNN
Skyrsla
alþjóðaþings sálarrannsóknamanna.
Le compte-rendu officiel du premier cong-rés interna-
tional des recherches psychiques á Copenhague 26. Aout —
2. Septembre 1921. — (Opinber skýrsla um fyrsta alþjóða-
þing sálarrannsóknamanna, haldið í Kaupmannahöfn 26.
ág. — 2. sept. 1921). Khöfn 1922.
Skýrsla þessi er gefin út af aðalritara þingsins, Carl
Vett forstjóra, og er all-stúr bók (554 bls.) Er þar skýrt
frá þvl, sem gei’ðist á þinginu, og prentuð erindi þau, sem
þar voru flutt, nema erindi dr. Kort Kortsen, sem höf.
neitaði að láta koma opinberlega fram. Eru erindin á
frönSku, þýzku, ensku, dönsku eða norsku. En sá galli er
á útgáfunni, að mikið er um prentvillur í bókinni, og eru
sumar all-spaugilegar, en aðrar hálf-bagaiegar. Er þetta
mikill ókostur.
Praman við fyrirlestrana er bréf til þingsins frá próf.
Charles Richet, þar sem hann hvetur til að hirða meira um
staðreyndir en fræðikenningar og minnist með þakklæti
höfunda vísindalegra sálarrannsókna, þeirra F. W H. My-
ers og' Sir William Crookes.
Þá eru erindi prentuð, og ei-u þau all-misjöfn. Gefur
þar að líta frásagnir um stór-merkilegar staðreyndir, svo
sem erindi frú Bisson um líkamningarnar hjá Evu C.,
erindi dr. Geley ixm fyrirbrigðin hjá Franelk Kluski, erindi
próf Haralds Níelssonar um reynslu tilraunafélagsmanna
með Indriða Indriðasyni og erindi dr. von Schrenck-Notzings
um reimleiJcana í Ilopfgarten. Enn fremur eru þar lieim-
spekilegar og fræðilegar hugleiðingar, sumar ágætar (t. d.
eftir dr. Geley og dr. W. F. Prince), en aðrir, að mér virð-
ist, nokkuð í lausu lofti (t. d. fyrirlestur dr. H. .Jaworeki um
„Géon“, jarðarandann).