Morgunn - 01.06.1935, Blaðsíða 25
MORGUNN
19
var ógerningur, en eg ætlaði að gefa yfirlit yfir starf
»Morguns« á liðnum 15 árum.
Sennilega er þekkingin á málefninu óviða i heiminum
meiri en hér á landi, meðal almennings; það er stórkost-
lega þýðingarmikið; þið vitið hverjum það er að þakka;
en vanþekkingin er víða mikil og hleypidómarnir magn-
aðir; við, sem í þessu félagi erum, höfum óbeinlínis tekið
að okkur það starf að vera útverðir þeirrar þekkingar og
hafi tilgangur minn með þessu erindi verið nokkur, var
hann sá, að rifja upp með ykkur til að hugfesta ykkur
enn betur en áður, hve geysilega míkið og merkilegt efni
»Morgunn« hefir flutt þjóðinni, og hve mikið af vígðum
vopnum hann leggur okkur í hendur, til orustunnar.
í niðurlagi ávarpsorðanna í fyrsta heftinu sem kom út,
standa þessi orð: »Okkur, sem riðnir eru við útgáfu þess:
tímaritsins »Morgunn« — langar til að það verði ofulítill
gluggi, er eitthvað af morgungeislum góðra hugsjóna geti
skinið í gegnum — —«. Eg vil að lokum segja þetta:
»Morgunn« hefir orðið ekki ofurlitill gluggi heldur stór, og
í gegnum hann hefir skinið mikið af morgungeislum góðra
hugsjóna inn í margar sálir, austan hafs og vestan; því
verður þess einnig af okkur krafist að við stöndum fast
að honum; við getum enga hugmynd um það gert okkur
hve mikið öðruvísi andlegt líf á ísiandi liti nú út, en það
gerir, ef »Morguns« hefði ekki notið við.
2*