Morgunn - 01.06.1935, Side 96
90
MOEGUNN
ur er væntanlegur af slíkri rannsókn, nema gengið sé að
henni með góðvild og samúð.
Læknarnir verða að gerast vinir miðlanna og gera
þeim bersýnilegt, að þeir séu ekki í þessu starfi sem kald-
lyndir dómarar, heldur sem vingjarnlegir samverkamenn og
einlægir eftirleitendur sannleikans.
Sesselíusi eru alloft sýndar með afbrigðum einkenni-
legar myndir, líkt og í kvikmyndahúsum, að mér skilst.
Einkum eru þessar sýnir dýrlegar um hátíðir. Meðal ann-
ars hefir hann séð efni jólaguðspjallsins, móðurina og
barnið í jötunni, birtuna á völlunum og fénaðinn, vitring-
ana og englana. Hann las orðin, sem sagt er að englarnir
hafi sungið, letruð á brjósti Helgu. Þetta var alt í himn-
eskum Ijóma, segir hann, en einkum barnið og móðirin.
Miðilsstarf Sesselíusar Sæmundssonar hefir hingað til
að langmestu leyti lent í Iækningatilraunum. Það stafar af
þeirri gífurlegu aðsókn, sem hann hefir haft af sjúkling-
um. Til dæmis að taka komu 179 sjúklingar frá 2. marz
síðastliðnum til 16. sama mánaðar. En fullyrt er, að hann
hafi Iíka hæfileika til að koma fram endurminningasönnun-
um. Meðal annars bendir á það skýrsla, sem Morgni hefir
borist frá Guðmundi Ólafssyni múrara á Njálsgötu 58.
Rétt þykir að láta hana fara hér á eftir.
»Lítil lýsing af því, hvernig eg kyntist sálrænum hæfi-
leikum Sesselíusar Sæmundssonar, og hvernig andleg starf-
semi hans reyndist mér, þegar eg fór að kynnast henni,
fer hér á eftir, þótt í örfáum orðum sé.
Það mun hafa verið á árinu 1931, að kunningi minn
hittir mig á gangi hér á götu í Reykjavik. Hann segir mér
þær fréttir, að maður nokkur, sem við þekkjum báðir og
búi hér í nágrenni við okkur, sé farinn að sjá og geti tal-
að við vitsmunaverur, sem almenningi séu ósýnilegar.
Vinur minn segir mér, að fyrst og fremst sé það stúlka,
vinkona hans, sem nýlega var farin burt úr þessum efnis-
heimi, sem birtist honum og tali við hann með þeim hætti,