Morgunn - 01.06.1935, Síða 81
MOKGUNN
75
3. spurning. Hvert er hið sameiginlega hlutverk guð-
speki og spiritisma?
Suar. Hið sameiginlega hlutverk guðspeki og spíri-
tisma er aðallega tvenskonar, og er í því fólgið að vinna
bug á blindri bókstafstrú annarsvegar og blindri efnis-
^yggju hinsvegar. Þær eiga að gera menn frjálsa í and-
legum skilningi, víkka sjóndeildarhringinn, gera heiminn
stærri og mennina stærri. Þær eiga að vera pílagrímum
sannleikans einskonar leiðarljós. Ef þeim tekst að vinna
bug á blindri bókstafstrú annarsvegar og blindri efnis-
hyggju hinsvegar, þá tekst þeim og um leið að vinna það
verk, sem svo áríðandi er, að unnið sé: að sœtta trú og
uísindi. En til þess að þetta megi takast, er nauðsynlegt,
að spíritistar og guðspekingar geri sér grein fyrir þvi, að
þeir eiga að vinna saman. Þeir eiga að sameina krafta
sína sem mest og bezt gegn þessum tveim óvinum, sem
sigra þarf: Þröngsýni trúmannsins og þröngsýni vísinda-
Hannsins. En hvernig eiga þeir að fara að því að sam-
eina krafta sína? Eiga þeir að mynda sameiginlegan félags-
skap, — láta t. d. guðspekifélagið og sálarrannsóknafélagið
renna saman í eitt félag? Eg held að það væri mjög óvitur-
iegt. En það sem þeir eiga að gera, er þetta: Þeir eiga að
iúta allar deilur niður falla, kynna sér sem bezt hvor ann-
ars fræði, skiftast á liðsmönnum, t. d. fyrirlesurum, og
ieggja altaf og alstaðar aðaláherzlu á það, sem þeim er
sameiginlegt. Báðar eru þessar stefnur svo giftudrjúgar, að
Uiargir mætir menn hafa aðhylst þær og gerst forvígis-
•Uenn þeirra, og verður varla á milli séð, hvor stefnan
hefir lagt heiminum til meiri eða betri menn. Báðar eru
stefnurnar jafn-tiginbornar eða ættgöfugar, ef svo mætti
segja: Guðmenni standa á bak við þœr báðar. Þær ættu
því að geta starfað saman og rétt hvor annari bróður-
hönd sem tveir jafningjar,