Morgunn - 01.06.1935, Blaðsíða 45
MORGUNN
39
Ótrúlegar en sannar sögur
utan úr heimi.
Einar Loftsson hefir safnað og sagt i S. R. F. í.
Eg ætla að segja að þessu sinni frá nokkrum dulrænum
'viðburðum, er gerst haía og gerast á meðal sumra þeirra
þjóðflokka, er naumast er hægt að skipa á bekk með
menningarþjóðunum. En þeir viðburðir og fyrirbæri, er eg
nú ætla að segja frá, hafa verið athugaðir og gagnrýndir
af gætnum og athugulum mönnum, og fengin revnsla af
slikri athugun hefir stundum orðið þeim alt annað en
þægileg.
Eg ætla þá að byrja á því að segja frá »Debbil,
Debbil« steininum svo nefnda, eða öðru nafni töfrastein-
inum. Sagan er sögð af Jas Brennan, starfsmanni stjórnar-
innar í Ástralíu. Aðalstarf hans í þjónustu hennar var eft-
irlit með heilbrigðismálum og jarðrækt. Eftirlitssvæðið, er
‘honum var sérstaklega falið til umsjónar, var stórt og
krafðist allmikilla ferðalaga fram og aftur. Á ferðum þess-
um kyntist hann mörgum mönnum, og heyrði einatt all-
kynlegar þjóðsögur og munnmæli, er fólkið virtist fult af;
einkum voru þær um ýmsa undarlega og dularfulli við-
burði, er komið hefðu fyrir suma þeirra, er rótað hefðu við
gömlum dysum, þar sem frumbyggjar landsins höfðu falið
bein töframanna sinna, einkum þá, er hefðu haft á brott
með sér einhverja þá muni, er töframaðurinn hafði átt.
Eg hlustaði á þessar frásagnir sem hverjar aðrar hégiljur
og heilaspuna, segir Jas, sem ekkert annað en heilaspuna
og þvaður, sem leifar deyjandi hjátrúar og hindurvitna,
sem enginn hugsandi maður með heilbrigðri skynsemi gæti
tekið alvarlega nú á tímum. En eg er nú ekki alveg jafn-
sannfærður um það og áður, bætir hann við. Eg læt hann
sjálfan skýra ykkur frá því.