Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 9
Sir Oliver Lodge.
(Erindi eftir séra Jón Auðuns).
I fyrsta sinn, sem vér komum saman á þessu ári, er fé-
lagsfundur vor helgaður minning Sir Olivers Lodge, en
hann andaðist að heimili sínu, Normanton House, Wilts-
hire, á Englandi, þ. 22. ágúst síðastl., og var þá á nítug-
asta aidursári sínu.
22. ágúst var giftingardagur hans, og á þeim degi vígð-
ist hann í annað sinn elskaðri eiginkonu sinni, sem horfin
var yfir landamærin nokkurum árum á undan honum, en
þau árin fullyrti hann að hann hefði marg oft haft sam-
band við hana.
Engum manni hefir auðnazt að vinna annað eins að
útbreiðslu spíritismans og Sir Oliver Lodge, og bar þar
ekki að eins til hve óvanalega liáum aldri hann náði, meö
lítt skertum sálarkröptum, heldur einnig hitt, hversu mikil
var frægð hans, sem eins af stórbrotnustu vitmönnum og
vísindamönnum mannkynsins. Hann var margsinnis
nefndur „mesti djúphyggjumaður veraldarinnar“, og
æðstu vísindastofnanir jarðarinnar töldu sér heiður að
hafa hann í forsetastóli. Það er óvíst, að nokkur annar
nútímamaður hafi notið víðtækari ástsældar en hann, og
milljónir manna um allan heim setti hljóðar við andláts-
fregn hans. Nærfellt níræður stóð hann enn á hátindi
sinnar frægðar, þegar flestir aðrir menn, þótt til frægðar
vinni, eru farnir að gleymast.
1