Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 53
MORGUNN
45
svo að ég þyrfti ekki að greiða skatt af þeim. Áður en
ég gerði það, ákvað ég samt að spyrja „véfréttina mína“.
og það gerði ég þ. 10. sept. Svarið kom: „Láttu húsgögn-
in standa kyrr í húsinu, því að leigjandinn tekur það á
föstudaginn í næstu viku“ Þessu ráði fylgdi ég og ónýtti
þær ráðstafanir, sem ég var búinn að gera til að koma
húsgögnunum í geymslu, en beið þess, sem verða vildi.
Ekkert gerðist fyrr en á fimmtudag í næstu viku. Þá
hringdi ung kona dyrabjöllunni, hún sagði, að faðir sinn
biði í vagninum sínum fyrir utan og bað mig að koma með
þeim og sýna þeim húsið. Ég gerði það. Húsið hentaði
þeim og þau tóku það á leigu þegar frá næsta degi, sem
var föstudagur. Nóttina áður hafði húsið þeirra í London
orðið fyrir loftárás og því var þeim nauðugur sá einn
kostur að finna sér tafarlaust annan dvalarstað. Þarna
getur ekki verið um neinn hugsunarlestur að ræða af mið-
ilsins hálfu, því að leigjandinn minn hefir síðar sagt mér,
að sér hafi ekki komið til hugar að flytjast frá London
fyrr en eftir að búið var að skjóta húsið hans niður.
Ég hefi tilgreint hér aðeins fáar af þeim merkilegu for-
spám, sem ég hefi fengið, en mér sýnist þær allar svo úr
garði gerðar, að ómögulegt sé að útskýra þær sem tilvilj-
un, fyrirfram þekkingu (preconception) undirvitundar-
mnar eða fjarhrif (hugsanaflutning eða hugsanalestur).
Ég er fyllilega sammála hr. Maby, þegar hann segir, að
vér getum ekki búizt við auðveldri lausn þessa geisilega
vandamáls og ég hygg, að vér munum aldrei finna lausn
þess í jarðlífi voru. Þær liggja fyrir utan skilning vorn
á núverandi þroskastigi voru.
Hvað viðvíkur skýringartilgátum eins og „ferðalag í
tímanum" (Timetravelling), „fjórðu-víddar gagnsýni“
(Fourth-dimensional vistas), „fleir-víddar tímanum"
(Multi-dimensional time), „Serialisma“ o. s. frv., eru það
tilgátur, sem eru æði yfirborðslegar. En þó hefir stærð-
fræðingum og eðlisfræðingum tekizt að færa svo sann-
færandi líkur fyrir þessum hugmyndum sínum, að „heim-