Morgunn - 01.06.1941, Blaðsíða 51
MORGUNN
43
um viðskilnaðinn með öryggis- og ástúðarhugsunum, hver
slílc hugsun er bæn, og henni er ævinlega svarað af þjón-
um kærleikans. Ég tel mig hafa hlotið nokkura þekkingu
á þessum efnum með því að íhuga það sem sannorðir og
greinagóðir menn hafa um þessi mál að segja og sann-
færing mín um það, að þeir hafi rök að mæla, hefir styrkzc
við eigin reynslu mína, bjarmann af leiftrum þeim, sem
mér hefir auðnazt að greina. Hún er máske blekking ein
og kvikskynjun að dómi þínum. Það skiptir mig ekki neinu.
Ég veit með sjálfum mér, að ég hefi rök að mæla, Það er
eKki til neins að þrátta um þau efni, en engum getur
blandazt hugur um það, sem ræða vill um þessi mál af
sanngirni, að trú, studd við þekkingu á veruleik ódauð-
leikans hefir borið frið og öryggi inn í líf óteljandi
þreyttra og þjáðra vegfarenda. „Leitið, og þér munuð
finna“, er hin sígilda vegsögubending aldanna. Viljir þú
auðgast af þekkingu, þá verður þú að leita hennar. Þekk-
ing er lausn hins einlæga leitanda. Haf það hugfast, að þú
sjálfur ert vegurinn.
Einar Loftsson.
Forspár.
Nokkur dæmi úr eigin reynslu eftir J. H. SYMONS.
Light 6. febr. 1941.
1 júnímánuði 1920, fékk ég skilaboð, sem áttu að koma
frá látnum móðurbróður mínum, og voru þau þessi: ,,Móð-
ir þín kemur bráðlega til mín“. Ég varð mjög undrandi
yfir þessari orðsending, vegna þess að móðir mín, sem var
þessum bróður sínum einkar kær, var um þetta leyti viö
ágæta heilsu. Samt spurði ég: „Hvenær á þetta að ger-